Frístundaheimilið Glaðheima á barnvænni stað

Undirskriftasöfnun til að þrýsta á um flutning frístundaheimilisins Glaðheima á barnvænni stað nær Langholtsskóla en það nú er á.

Foreldrar og forsjárfólk barna í Langholtsskóla fara fram á það við Reykjavíkurborg að frístundaheimilinu Glaðheimum verði fundin betri og barnvænni staðsetning en sú sem nú er notuð.  Frístundaheimilið er nú staðsett á horni Sæbrautar og Holtavegar, en sú staðsetning hefur mikla slysahættu, hávaða- og eiturefnamengun frá bílaumferð í för með sér. Nýverið varð barn fyrir bíl á leið sinni heim úr frístundaheimilinu á gatnamótum Holtavegar og Langholtsvegar.

Lóð frístundaheimilisins er ógirt og er þar af leiðandi opin leið beint út á Sæbraut fyrir börn sem ekki hafa þroska eða reynslu til að leggja mat á hættuna sem þau geta komið sér í. Þó að starfsfólk sé á varðbergi eru börnin svo mörg að það er hætta á að þau geti þrátt fyrir það farið sér að voða.

Að auki er verslun með kynlífsvörur og tilheyrandi útstillingum andspænis frístundaheimilinu, á Holtavegi. Foreldrum þykir almennt afar óviðeigandi að staðsetja slíka verslun í nærumhverfi barnanna.

Það ætti að vera viðráðanlegt verkefni að finna frístundaheimilinu nýja og varanlega staðsetningu í Laugardalnum. Ónýtt lóð er neðan við lóð Langholtsskóla, þ.e. sunnan megin, sem gæti verið kjörin staðsetning fyrir öruggt og barnvænt frístundaheimili. Fleiri svæði virðast möguleg, svo sem á sömu lóð og frístundaheimilið Dalheimar er staðsett á.

Samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á að lifa og þroskast í besta mögulega umhverfi. Allar ákvarðanir stjórnvalda ber að taka með sjónarmiðið um það sem barni er fyrir bestu í forgangi. Okkur ber að tryggja börnunum okkar þá vernd og umönnun sem þau eiga tilkall til og rétt á, á grundvelli Barnasáttmálans sem nú hefur lagagildi á Íslandi.  

Við skorum á Reykjavíkurborg að bregðast við fyrir börnin okkar sem allra fyrst.