Þjóðaratkvæði vegna vopnavæðingar hinnar almennu lögreglu.
Við undirrituð skorum á stjórnvöld að efla til þjóðaratkvæðagreiðslu hið fyrsta um hvort vélbyssuvæða beri hinn almenna lögreglumann. Jafnframt skorum við á stjórnvöld leggja blátt bann við notkun hverskyns drápstóla af hálfu hins almenna lögregluþjóns þar til vilji þjóðarinnar liggur fyrir.
Hér er um að ræða grundvallarbreytingar á því umhverfi er íslenskt samfélag hefur búið við hvað vopnaburð lögreglu varðar. Við teljum það því vera mannréttindi okkar í lýðræðislegu samfélagi, að fá um það að kjósa hvort vilji sé fyrir þeim veigamiklu breytingum sem þessi tiltekna vopnavæðing mun hafa.
Þorsteinn Jónsson Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans
Announcement from the administrator of this websiteWe have closed this petition and we have removed signatories' personal information.European Union's General Data Protection Regulation (GDPR) requires a legitimate reason for storing personal information and that the information be stored for the shortest time possible. |