Klárum dæmið

Anti-Groupism

/ #72 Citizen of the world

2013-04-22 21:23

Villtu sjá hvað er í boði? Lærðu þá að lesa og farðu á næsta bókasafn. Getir þú ekki kraflað þig út úr því hvað er í boði þannig er spurning hvort þessi forrit á netinu sem eiga að auka greind hjálpi þér. Líklega ekki, en þú getur reynt. Eina sem mun breytast við að "sjá samninginn" er að þá fá sölumennirnir tíma til að heilaþvo þá sem samningurinn er fyrir, greindarskert og latt fólk sem getur ekki lesið sér til gagns. Ég hvet þína líka til að sleppa því að mæta á kjörstað. Atkvæði óupplýstrar skilar sér í verra þjóðfélagi. ESB hverfur bráðum hvort sem þú kýst já eða nei. Þú ert bara að kjósa um að hve stóru leyti þú hverfur sjálfur með því, þínir og þitt. Conceptin "Evrópa" og "Evrópumaðurinn" hafa unnið sér inn dauðadóm og eilífa fordæmingu mannkynsins, fyrir kynþáttanýð, heimsvaldakúgun, arðrán og fals. Í þessum töluðum orðum vinna þjóðir ESB að því að svipta Afríku eðlilegu aðgengi að vatnsbólum. Horfði á "Flow- for the love of water" á Youtube. Þar lærir þú hvernig hjarta ESB slær. Það er að segja nákvæmlega eins og í Þýskalandi árið 1944. Sama gamla steinhjartað, sem lærir aldrei. Hún mun falla og aldrei rísa á fætur aftur. Og það er gott. Á rústunum verður byggt betra. En takir þú ekki þátt þá þarftu ekki að fara í ruslið með þeim.