Verndum Sameer og Yazan veitum palestínskum flóttamönnum á Íslandi alþjóðlega vernd.
Við skorum á íslensk stjórnvöld að veita palestínskum flóttamönnum sem hafa dvalið hér á Íslandi um árabil alþjóðlega vernd af mannúðarástæðum vegna stöðunnar í heimalandinu. Við óskum eftir flýtimeðferð við umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt og að sett verði í forgang að leyfa palesínskum flóttamönnum rétt til fjölskyldusameiningar svo hægt sé að veita þeim framtíð hér í öruggu skjóli og skorum á ríkisstjórnina að senda ekki úr landi drengina Sameer og Yazan sem eru 12 og 14 ára og hafa gengið í íslenskan skóla og eignast hér ástvini og upplifað frið.
Þóra Karítas Árnadóttir Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans