Styðja skal við starfsemi listdansskóla til samræmis við annað listnám!
Athugasemdir
#607
Mér finnst mikilvægt að gæðakennslan sem fer fram í skólanum fái að halda áfram.Hrönn Baldursdóttir (Reykjavík, 2023-03-22)
#608
Vil tryggja börnum og ungmennum jöfn tækifæri þegar kemur að listnámi.Auður Haraldsdóttir (Skagafjörður, 2023-03-22)
#609
Allir krakkar ættu að geta stundað listnám við hæfiRosborg Halldorsdottir (Mosfellsbær, 2023-03-22)
#612
Ég skrifa undir vegna þess að til eru þau börn sem þrífast hvað allra best innan dansheimsins.Jóhanna Þorleifsdóttir (Reykjavík, 2023-03-22)
#621
Það er nauðsynlegt að tryggja að það uppbyggilega og gefandi starf sem unnið er í listdansskólum landsins geti vaxið og dafnað. Sem og að jafnræði sé milli listgreina.Anna Jóhannsdóttir (Reykjvík, 2023-03-22)
#626
Nám í listdans er líka listanám!Hjalti Þórisson (Kópavogur, 2023-03-22)
#627
Á yndislegan afastrák sem sér framtíð sína í ballett. Tel það sanngirniskröfu að listdans hljóti styrki hins opinbera til jafns við annað listnám.Ásgeir Grétar Sigurðsson (Kópavogur, 2023-03-22)
#629
Við undirrituð skorum á háttvirtan mennta- og barnamálaráðherra að koma á réttmætum stuðningi við starfsemi listdansskóla vegna kennslu grunnnáms í listdansi. Mikið misræmi og ójafnræði ríkir í fjárúthlutunum ríkis og sveitarfélaga til listnáms og er aðstöðumunur listgreina mjög mikill er kemur að starfsumhverfi og aðbúnaði. Árið 1963 voru sett lög um tónlistarskóla í landinu og fjármagn til tónlistarnáms stóreflt í kjölfarið. Sú fjárfesting var mikið gæfuspor og hefur hún skilað sér í blómlegu tónlistarlífi og uppbyggingu á tónlistarnámi fyrir börn og ungmenni um allt land. Við undirrituð bendum á það hróplega misrétti sem listdansnemar búa við í dag eins og hefur komið fram í fjölmiðlum seinustu daga og vikur.Margrét Kristín Blöndal (Reykjavík, 2023-03-22)
#630
Öll á rétt að stunda þá list og íþrótt sem þau vilja.Ólöf Ragna Árnadóttir (Reykjavík, 2023-03-22)
#639
Það þarf að vera samræmi í veittum styrkjum.Dmitrij Devjatov (Reyjkavik, 2023-03-22)
#640
Nauðsynlegt er að börnum og ungmennum séu tryggð jöfn tækifæri. Þau tækifæri eiga einnig að ná til val þeirra á listnámi. Dans er listgrein sem eins og aðrar greinar verða að fá að þróast faglega hérlendis á jafningjagrundvelli líkt og hún hefur fengið að þróast í nágrannaþjóðum okkar. Börn eiga að fá jöfn tækifæri til að blómstra í sínu vali, þannig hlúum við einnig að framtíðinni.Inga Henriksen (Reykjavik, 2023-03-22)
#641
Ég naut sjálf góðs af því að stunda nám við Listdansskóla Íslands og hefði ekki viljað missa af því sem listamaður. í listdanskennslu lærir nemandinn svo margt fleira en bara dansinn sjálfan og er mikilvæg undirstaða þessarar listgreinar og annarra á Íslandi.Ingveldur Yr Jonsdottir (Reykjavík, 2023-03-22)
#643
Dansinn lífi!Vala S. Valdimarsdottir (RVK , 2023-03-22)
#645
Ég hef stundað dans frá því að ég var 4 ára og námið mitt í Listdansskóla Íslands er ómetanlegt. Ég væri ekki á þeim stað sem ég er í dag ef ekki væri fyrir listdans, þ.e.a.s. að stunda dansnám í Trinity Laban.Anja Sverrisson (Hafnarfjörður, 2023-03-22)
#651
Listdansskóli Íslands hefur djúpar rætur í íslensku menningarlífi og býr yfir áratugareynslu og undirbýr nemendur sína jafnt sem fagmenn í listdansi sem og fyrir fjölbereytt frekara nám og störf. Það er nauðsynlegt að tryggja jafnan rétt til náms eftir áhugasviði og hæfileikum barna og ungmenna í þessu landi.Sigurður Halldórsson (Reykjavík, 2023-03-22)
#661
ég skrifa undir af því að danslistin er ein af höfuðgreinum listanna.EGILL OLAFSSON (VALDEMARSVIK, 2023-03-22)
#663
Ég styð listdanskennslu á öllum stigum og það er aum þjóð sem hendir út einu listformi umfram önnur.Jóhanna Guðríður Linnet (Kópavogur, 2023-03-22)
#664
Ég styð öfluga liststarfsemi á Íslandi, Listdansskólinn er forsenda sterkrar danskennslu.Ólafur Kristjánsson (Reykjavík , 2023-03-22)
#669
Það er réttlætanlegt í stíl við hvað hefur verið gert fyrir tónlistaskólana.Unnur Guðjónsdóttir (101 Reykjavík, 2023-03-22)
#679
Listdansnám er mjög mikilvægt og byggir upp ýmsa færni, samhæfingu, aga og góðan félagsskap fyrir nemendur. Það sem ég lærði í listdansnámi mun nýtast út lífið, sem og vinasambönd sem myndast hafa í gegnum hann.Bergdís Helga Bjarnadóttir (Odense, 2023-03-22)
#683
Vegna mikilvægis þessarar menntastofnunar fyrir dansmenntun á ÍslandiSigríður Ólafsdóttir (Hafnarfijōrður, 2023-03-22)
#684
Ballet er göfug og falleg listBo Halldorson (Hafnarfjörður, 2023-03-22)
#699
Er menntaður listdansari og vinn sem atvinnudansariMarinó Mabazza (Reykjavik (hfj), 2023-03-22)
#700
Ég skrifa undir vegna þess að það er mjög mikilvægt að styðja við og hlúa betur að listdansi og listdanskennslu.Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir (Reykjavík , 2023-03-22)
#702
Ég skrifa undir vegna þess að ég vil leggja áherslu á mikilvægi þess að öll börn fái jöfn tækifæri til að velja sér þá listgrein sem að hugur þeirra stendur til.Sólveig Hauksdóttir (Reykjavík, 2023-03-22)
#704
Listdansskoli Íslands er frábær uppeldisstöð fyrir upprennandi listdansara. Listdans krefst mikils aga og er mikilvægur fyrir menningu hvers lands.Bergþóra Óladsóttir (Mosfelsvær, 2023-03-22)
#705
Það er algjör tímaskekkja að ekki sé stutt nægjanlega vel við þessa mikilvægu grein.Edda Björnsdóttir (Reykjavík, 2023-03-22)
#708
Listdansskólinn gegnir alltof mikilvægu hlutverki þegar kemur að danslist á Íslandi til að bjarga honum ekki. Ég og aðrir höfum gagnast af því frábæra starfi sem skólinn hefur sinnt í gegnum árin og án hans hefðum við misst af tækifærum, lærdómi og vináttum.Þórdís Þorsteins (London, 2023-03-22)
#711
Það er til háborinnar skammar hvernig þessi ríkisstjórn og nokkrar á undan núverandi hafa hagað sér í skólamálumSigurjón Guðmundsson Guðmundsson (Reykjavík, 2023-03-23)
#712
Þetta nám skiptir máli. Listdansskóli Íslands er virt stofnun sem á betra skilið.Anna Claessen (Reykjavik, 2023-03-23)
#715
Sem fyrrum nemandi við skólann má ég ekki til þess hugsa að skólanum verði lokað. Dýrmætt skólastarf sem skilar sér margfalt tilbaka til nemenda og listdans á Íslandi.Ingibjörg Elín Viðarsdóttir (Garðabær, 2023-03-23)
#716
Það eiga að vera jöfn tækifæri fyrir öll að stunda það listnám og/eða íþróttir sem hvert og eitt vill stunda.Katrín Guðnadóttir (201, 2023-03-23)
#722
Ég á dóttir sem er tvö faldur heimsmeistari i dansi og er á leiðinni á heimsmeistaramót aftur núna 2023. Hun á rétt, aðrir dansarar eiga rétt. Dansskólar eiga sinn rétt.Afram dansarar
Sandra mjöll Ólafsdóttir (Reykjanesbær, 2023-03-23)
#723
Nám í listdansi er mikilvægt fyrir menningarlífið hér á Íslandi, alveg eins og annað listnám.Hjörtur Ingvi Jóhannsson (Garðabær, 2023-03-23)
#725
Það þarf fjölbreytni í namskeið í boði fyrir grunnskóla börn eftir skólanum. Þáttakka í svona gæða frístundir gera kraftaverk fyrir geðheilsu og heilsan barnanna.Natalie Colceriu (Reykjavik, 2023-03-23)
#732
Það þarf að tryggja börnu og ungu fólki jöfn tækifæri þegar kemur að vali á listnámi ÓHÁÐ því hvaða listgrein eða áhugamál þau velja.Sóley Sóleyjardóttir (Akranes, 2023-03-23)
#735
Listir skipta máli í lífinuAgnar Burgess (Reykjavík , 2023-03-23)
#736
Mikilvægt að halda listdansinum lifandiKatla Thor (Reykjavik , 2023-03-23)
#739
Barnabarn stundar listdans við skólann.Ásdís Bjarnadóttir (Reykjavík, 2023-03-23)
#746
Dans er ekki bara líkamleg jafn sem andleg heilsu hreyfing. Það er falleg lifand list sem býr í öllum og vert að huga og hlúa vel að hjá hverjum og einum, þá sérstaklega sem ákveða að taka það að sér sem náms stefnu.Berglind Aclipen (Reykjavík , 2023-03-23)
#751
Styð allan dans og það vantar meiri stuðning.Daníel Sverrir Guðbjörnsson (Reykjavík, 2023-03-23)
#758
Á dóttir sem æfir hjá þeim og mér er ekki sama um þennan flotta skólaGyda Agnarsdottir (Akranes, 2023-03-23)
#760
Gera þarf betur í að tryggja börnum og ungmennum jöfn tækifæri er kemur að vali á listnámi, óháð því hvaða listgrein eða tómstund á í hlut.Hrefna Sætran (Reykjavík, 2023-03-23)
#763
Ég vil að börn njóti jafnræðis til listnáms.Brynhildur G. Flóvenz (Garðabær , 2023-03-23)
#765
Dóttir mín stundar dansnám í skólanumKarlotta Ósk Jónsdóttir (Kópavogur, 2023-03-23)
#768
Mér finnst mikilvægt að stutt sé við listnám!Dóra Björk Steinarsdóttir (Reykjavík, 2023-03-23)
#773
Dansinn er eins og súrefni fyrir sumum. Ég veit ekki hve oft dansinn hefur reynst mér vera bjargvættur í lífinu. Björgum listdanskennslunni. Og um leið framtíð barna og ungmenna.Friðrik Agni (Reykjavík , 2023-03-23)
#777
Listdans á að flokkast undir sama hatt og tonlist…Helena Björk Jónasdóttir (Hafnarfjörður, 2023-03-23)
#781
.Sandra Pétursdóttir (Reykjavík, 2023-03-23)
#783
Þetta er nauðsynlegt val fyrir ungt fólkGudmundur Arni Gunnarsson (Kópavogur, 2023-03-23)
#785
Þetta er alveg þess virði að styðja áhugamál unga fólksins og skipir engu máli hvaða tómstundaiðkun er þetta.Barbara Ferster (Reykjavik , 2023-03-23)
#786
Dans er eitt af því mikilvægasta sem til er. Það fyrsta sem börn gera þegar þau heyra tónlist er að dansa - það er áður en þau byrja að ganga. Fátt er betra en að dansa. Dans er ómetanlegur og jafnvel ein af grunnþörfum mannsins og auðvitað á Listdansskóli að fà jafn mikla peninga og hver annar skóliSteinunn Harðardóttir (Reykjavík, 2023-03-23)
#789
Ég á barnabarn í listdansnámi sem er afar efnilegur og nýtur sín í dansinum. En hann á hins vegar í vissu strögli með bóknám vegna alvarlegrar lesblindu. Í dansinum blómstrar hann og ég er ekki í neinum vafa um hve dansnámið hefur styrkt sjálfsmynd hans. Ég tel að það yrðu alvarleg mistök ef styrkurinn yrði lagður af.Þorgerður Gunnarsdóttir (Kópavogur , 2023-03-23)
#790
Ég styð fjölbreytni í tómstundum fyrir börn og vil búa við ríkari menningu í mínu landi.Inga Maren Rúnarsdóttir (Kópavogur, 2023-03-23)
#792
Mér finnst mikilvægt að dans sé í boði sem listgrein á Íslandi, að börn og unglingar hér geti valið um að læra undirstöðu í dansi. Ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur á Íslandi öllu. Landsbyggðin er líka Ísland!Anna Richardsdóttir (Akureyri, 2023-03-23)
#799
Dóttir mín er að æfa dans á Akureyri..mjög mikilvægt að börn á landsbyggðinni fái jöfn tækifæri..Gerður Hjaltadóttir (Akureyri, 2023-03-23)