Nýjustu undirskriftalistarnir
Undirskriftalistar með a.m.k. 5 undirritunum eru skráðir hér. Lærðu meira... |
Let's keep the current shift plan 7-7
Við starfsfólk Öyggismiðstöðvarinar viljum halda í núverandi vaktaplan. Þess vegna gerum við þennan undirskriftalista til þess að skora á stjórnina að halda í núverandi vaktaplan því þetta er vilji starfsfólksins. EnglishWe the staff of Öryggismiðstöðin want to keep the current shift schedule. That's why we are making this petition to call on the board to keep the current shift plan because this is the will of the staff
29 Útbúinn: 2023-01-23 Tölfræði
Framlenging á heimild ráðstöfunar séreignasparnaðar inn á lán eða til húsnæðiskaupa
Við skorum á stjórnvöld að framlengja heimild til ráðstöfunar séreignasparnaðar inn á lán eða til húsnæðiskaupa. Almenn heimild til að nýta séreignarsparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól láns sem tekið er vegna kaupa gildir til og með 30. júní 2023 eins og staðan er í dag. Þetta úrræði er gríðarlega vel heppnað og skiptir sköpum fyrir alla skuldandi íbúðaeigendur í landinu.
107 Útbúinn: 2023-01-10 Tölfræði
Við skorum á Ríkisstjórnina að koma fram við utangarðsfólk með virðingu og láta þau fá þak yfir höfuðið strax
Ragnar Erling Hermannsson ( Raggi Turner ) hefur verið áberandi ásamt sínum vinum í að berjast fyrir réttindum utangarðsfólks ( Heimilislausra einstaklinga ) þau hafa náð að snerta hjarta mitt og ég er að vona að þau hafi snert hjarta ykkar líka. Ég yrði glöð ef við myndum öll standa saman og hjálpa þeim að berjast fyrir sínum rétti um viðeigandi þjónustu og að þau fengu aðgang að húsnæði allan sólahringinn og svo einnig að það yrði sett í forgang að fá húsnæði fyrir þau þar sem þau geta skapað
383 Útbúinn: 2022-12-16 Tölfræði
Stöðvum fyrirhugaða lokun unglingasmiðjanna Stígs og Traðar
Við undirrituð mótmælum harðlega áformum Reykjavíkurborgar um að leggja niður starfsemi Stígs á Hverfisgötu og Traðar í Gerðubergi. Unglingasmiðjurnar hafa verið starfræktar áratugum saman og sýnt statt og stöðugt fram á mikilvægi þeirra fyrir félagslega einangruð ungmenni. Sum hver eru að upplifa það að eiga jákvæð samskipti við jafnaldra í fyrsta sinn í langan tíma, að eignast vini og að tilheyra. Reynslan sýnir okkur hversu mikilvægt það er fyrir þennan hóp ungmenna að eiga einhvern stað, ein
747 Útbúinn: 2022-12-08 Tölfræði
Stöðvum fyrirhugaða lokun á Vin
Við undirrituð mótmælum harðlega áformum Reykjavíkurborgar um að leggja niður starfsemi Vinjar á Hverfisgötu. Vin er gífurlega mikilvægt athvarf fólks með geðraskanir sem sumt hefur engan annan stað til að sækja stuðning og félagsskap. Lýðheilsa er alltaf besta fjárfestingin til langs tíma og hér er um sérlega viðkvæman og einangraðan hóp að ræða. Í vin hefur verið rekið dagsetur fyrir fólk með geðraskanir í um 30 ár og þar hefur verið unnin mikil og fagleg uppbyggingarvinna. Að binda endi á sl
3632 Útbúinn: 2022-12-08 Tölfræði
Launakjör Varnarteymis - Undirskriftalisti
Störf í Varnarteymi LSH fylgja gríðarlegt álag og áhætta. Útköllum á Geðsviði hafa aukist gríðarlega undanfarin misseri. Frá og með nóvember 2022, hafa komið upp ótal alvarleg atvik; til dæmis má taka tilraunir til íkveikju, í geðdeildarbyggingunni sjálfri og tilraun til að kveikja í starfsmönnum LSH. Algengt er að skjólstæðingar útbúi sér vopn eða hafa náð sér í eldhúshnífa til að hóta starfsfólki. Meðlimir Varnarteymis verða ítrekað fyrir líkamsárásum og aðkasti bæði innan og utan vinnustaðari
100 Útbúinn: 2022-11-28 Tölfræði
Hassalisti enn á ný?
Kæri lesandi, Nú biðla ég til ykkar, setjum pressu á Hafstein Inga um að taka virkan þátt í samfélaginu okkar og snúi aftur að Listagerð. Ég trúi að í krafti fjöldans getum við krafist þess af honum. Boltinn er nú í þínum höndum kæri lesandi. Einn fyrir alla og allir fyrir Hassa.
10 Útbúinn: 2022-11-20 Tölfræði
Enga jarðefnaverksmiðju í Þorlákshöfn
Undirrituð skora á bæjarstjórn Ölfuss að hætta öllum viðræðum við Heidelberg Materials um að reisa byggingar og vinnslu á þeim lóðum sem búið er að úthluta og falla frá stórtækum hugmyndum um frekari námuvinnslu í Sveitarfélaginu Ölfusi.
473 Útbúinn: 2022-11-15 Tölfræði
Hopstefna vegna vanefnda 69gr almannatrygginga
Hopstefna gegn Stjórnvöldum vegna vanefnda á 69 grein almannatrygginga.
770 Útbúinn: 2022-10-28 Tölfræði
Áskorun til bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar
Við foreldrar barna (og aðrir sem hafa áhuga á málefninu) í grunn- og leikskólum Suðurnesjabæjar skorum hér með á fræðsluþjónustu Suðurnejsabæjar að vinna að því að sameina starfs- og skipulagsdaga a.m.k. í hvorum bæjarkjarna fyrir sig með þeim hætti að þeir verði (eins og við verður komist) á sömu dögum í Gefnarborg og Gerðaskóla og svo í Sólborg og Sandgerðisskóla. Hefur undirrituð t.a.m. fengið þær upplýsingar frá íbúa og varamanni bæjarstjórnar í Vogum að þetta fyrirkomulag hafi verið tekið
42 Útbúinn: 2022-10-03 Tölfræði
Áskorun til Akraneskaupstaðar varðandi daggæslu barna
Við undirrituð skorum á Akraneskaupstað að endurskoða niðurgreiðslur til foreldra barna í vistun hjá dagforeldrum í bæjarfélaginu. Bæjarfélagið státar af flottu teymi dagforeldra sem hafa reynst börnum okkar mjög vel í gegnum tíðina. Því þætti okkur eðlilegt að þegar barn hefur náð 12 mánaða aldri sé niðurgreiðsla til dagforeldra á pari við niðurgreiðslu fyrir leikskólapláss. Þar með myndi hluti foreldra minnka til muna. Sumir foreldrar eru að horfa á að það muni einungis nokkrum dögum að barnið
203 Útbúinn: 2022-09-06 Tölfræði
Áskorun á stjórnvöld að stofnað verði embætti Umboðsmanns Öryrkja og langveikra.
Það er flestöllum sem það vilja vita orðið morgunljóst að stjórnvöld á Íslandi og kerfið sem þau hafa alið er slétt sama um hagsmuni öryrkja. Ef viljinn væri fyrir hendi af hreinni alvöru, þá væru öryrkjar upp til hópa ekki að lepja dauðann úr skel og þeirra fjölskyldur. Öryrkjar finna fyrir grimmd kerfisins upp á hvern einasta dag, t.d í hinni eilífu baráttu við Tryggingastofnun. Margir sem eru öryrkjar eru það veikir á líkama og sál að þrotlaus barátta við kerfiskallanna setur þau í snemmbúna
8 Útbúinn: 2022-09-06 Tölfræði
Mótmæli við þrengingu gatnamóta Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar - Undirskriftalisti
Ég legg hér fram að við stöndum saman og mótmælum að gatnamót Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar verði þrengd. Ef marka má umferðarþunga þá er hann eflaust ekki mikill þar nú og mætti frekar tryggja aðra akrein fyri strætó og leigubíla þar sem sjúkrabílar hafa beinni aðgang yfir á Miklubraut. Hvað svo þegar breytingar verða seinna meir þá er Dagur búinn með alla græna bletti og allar auka akreinar í borginni og ekki hægt að stækka fyrir umferð. ÉG MÓTMÆLI - EN ÞÚ?? - STÖNDUM SAMAN
5 Útbúinn: 2022-08-26 Tölfræði
Útiklefar í Nauthólsvík
Við óskum eftir utandyra skiptiaðstöðu í Nauthólsvíkinni. Eins væri æskilegt að ein af þremur útisturtum verði gerð að sturtuklefa. Ekki þarf klefinn að vera flókin hönnun eða kostnaðarsöm. Mikilvægast er að þeir sem kjósa slíkt þurfi ekki að nota inniaðstöðuna. Bæði er hún löngu sprungin, hreinlæti ekki alltaf upp á sitt besta, ilmefni í notkun og loftgæði skert. Við undirrituð notum Nauthólsvíkina og sjósund til heilsubóta, endurheimtar og félagsskapar, og óskum eftir því að hafa val á
112 Útbúinn: 2022-08-21 Tölfræði
Áskorun og brýnt ákall til skólastjóra og bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ vegna myglu í Kvíslarskóla.
Við undirrituð skorum á skólastjóra Kvíslarskóla og bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar að tryggja að skólahúsnæði Kvíslarskóla verði heilsusamlegt nemendum og starfsmönnum skólans, að gripið verði strax til aðgerða til að tryggja að svo verði og setja í forgang að finna annað/önnur húsnæði undir starfsemi skólans þar til núverandi húsnæði stenst kröfur um grunnskóla. Einnig að heildarúttekt verði framkvæmd og loftgæðasýni séu tekin áður en starfsemi hefst í skólanum að nýju. Í 20.gr. laga um grunnsk
255 Útbúinn: 2022-05-27 Tölfræði
Hringtorg við Urriðaholtsveg og Holtsveg
Miklar umræður hafa átt sér stað hjá íbúum Urriðaholts um þær framkvæmdir sem nú eru í gangi við gatnamót Urriðaholtsvegs og Holtsvegs. Verið er að setja upp götuljós við gatnamótin. Mikil umferð á sér stað um þessar götur og er það trú okkar að hringtorg væri besti kosturinn fyrir þessi gatnamót. Við viljum því skora á bæjaryfirvöld í Garðabæ til þess að endurskoða þessa ákvörðun sína sem fyrst og setja hringtorg við gatnamótin í stað götuljósa!
104 Útbúinn: 2022-05-26 Tölfræði
Áskorun á ríkisstjórn Íslands og lögregluyfirvöld til að gefa cannabisefni til framleiðslu Cannabis Oil
Við skorum á að íslensk yfirvöld gefi öll kannabisefni (cannabis sativa, cannabis indica) sem lögreglan leggur hald á til aðila sem munu búa til Full Extract Cannabis Oil (FECO) sem er í stuttu máli kallað RSO á ensku. Farið verður eftir þessari frammleiðsluaðferð : https://www.youtube.com/watch?v=6V0Cz6QRrnI Svo veður olían sett í sprautur (án nála) og þær svo gefnar sjúklingum sem geta nýtt sér hana. Þeir sjúkdómar sem hafa verið marg-rannsakaðir með þessari olíu og sýnt mjög góða raun eru m
13 Útbúinn: 2022-05-25 Tölfræði
Göngubrú yfir Sæbraut við Skeiðarvog/Kleppsmýrarveg
Öryggi skiptir okkur öll máli. Allir þegnar þessa lands eiga rétt á að búa við öryggi. Ég vil hvetja þig til að skrifa undir ef þú trúir þeirri fullyrðingu og vilt leggja þitt að mörkum við að styðja þessa framkvæmd. Íbúar nýja Vogahverfisins krefjast þess að Reykjavíkurborg fari tafarlaust í aðgerðir til að tryggja öryggi íbúa í hverfinu. Við viljum að sett verði göngubrú yfir Sæbraut við Skeiðarvog/Kleppsmýrarveg til bráðabirgða eða til framtíðar. Við getum ekki beðið eftir að Sæbrautin fari
440 Útbúinn: 2022-05-05 Tölfræði
Aukið umferðaröryggi við Lyngholt Reykjanesbæ
Við skrifum undir til þess að krefja Reykjanesbæ um aðgerðir. Mikill hraði er á umferð um götuna okkar og við viljum breyta því og gera götuna okkar öruggari fyrir börnin okkar og alla þá sem eiga þar leið. Eins og staðan er í dag þá er gatan okkar Lyngholt mjög breið þar sem eingöngu er gangstétt öðru megin og eingöngu ein mjó hraðarhindrun við miðja götu. Þessi hraðarhindrun gerir ekkert gagn þar sem bílar aka yfir hana á ógnarhraða. Hámarkshraði er 30 km en það er mjög sjaldgjæft að sjá bíl
5 Útbúinn: 2022-04-25 Tölfræði
Hávaðann burt úr miðbænum!
Hávaðann burt! Við krefjumst svefnfriðar í miðbænum Við sem eigum heima í miðborg Reykjavíkur, hótel- og gististaðaeigendur og allir aðrir sem eiga hagsmuna að gæta mótmælum harðlega að barir og krár komist upp með það að blasta tónlist út á götu og spila dúndrandi dansmúsík fram til hálf fimm á morgnana í miðri íbúabyggð án þess að yfirvöld aðhafist nokkuð í málinu. Um hverja helgi megum við þola yfirgengilegan hávaða frá þessum stöðum, sem heldur vöku fyrir fólki og spillir heilsu þess. Slík
89 Útbúinn: 2022-03-29 Tölfræði