Félagsráðgjafafélag Íslands fordæmir átökin á Gaza - Vopnahlé strax!
Félagsráðgjafafélag Íslands fordæmir átökin á Gaza svæðinu og skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér í þágu mannréttinda og friðar. Almennir borgarar ganga í gegnum hörmungar þar sem fjöldi fólks hefur verið hrakin á flótta án þess að eygja möguleika á öruggu skjóli eða grunnþjónustu. Fjöldi þeirra sem syrgja missi ástvina eykst stöðugt og skelfingin vex með hverri mínútu. Þetta upplausnarástand mun leiða af sér alvarlegar langtíma afleiðingar.
Félagsráðgjafar vinna gegn mannréttindabrotum hvar sem þau eiga sér stað með virðingu fyrir manngildi og sérstöðu hvers einstaklings. Nú er mál að linni Vopnahlé strax!
Félagsráðgjafafélag Íslands Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans