Ekki í mínu nafni

Við undirrituð, félagar í Pírötum, hörmum þá atburðarás sem átti sér stað á félagsfundi mánudaginn 15. júlí síðastliðinn. Umræddur fundur var félagsfundur og auglýstur sem slíkur og hvergi í fundarboði kom fram að persónulegt uppgjör milli nokkurra félagsmanna skyldi eiga sér stað.

Þingmenn Pírata og annað valdafólk innan flokksins sem tóku til máls á fundinum fóru offari gegn einum félagsmanni. Sú opinbera aðför, óháð því hvaða stöðu umræddur félagsmaður gegndi áður og hvað kann að hafa farið aðila á milli fyrr, er með öllu ólíðandi.Öllum skal sýnd kurteisi og virðing, sérstaklega þegar rætt er um og/eða talað til ákveðinna einstaklinga.

Framkoma þeirra sem fóru offari á fyrrnefndum fundi er ámælisverð, engum til gagns, og ber að fordæma.Þá skyldi ekki líta hjá stöðu þeirra sem um ræðir, en það traust sem fulltrúum grasrótar á Alþingi er falið er ekki sjálfsagður hlutur og bíður eðlilega hnekki, innan hreyfingarinnar sem utan, þegar komið er fram með þessum hætti.


Sigurdur Ágúst Hreggvidsson    Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans