Forsetaframboð Aralíus G Jósepssonar 2016
Núna hefst kosníngabaráttan hér á Íslandi 2016.
Margreyndur ferðalingur og hefur séð heiminn meira enn aðrir.
Ég óska hér með stuðning ykkar, og brjótum múrinn á Íslandi.
Kæru vinir
Þá er komið að því. Ég ætla að bjóða mig fram til forseta í sumar.
Íslenska þjóðin er að fara í gegnum mikið breytingatímabil þessa áratugina og margt sem mun óhjákvæmilega breytast, en líka margt sem við getum áorkað ef við vitum hvert við erum að fara. Við viljum betra samfélag, jöfnuð, gagnsæi, réttlæti, náttúruvernd, samvinnu og meira vald til fólksins. Ég stend fyrir endurskoðun stjórnkerfisins, fleiri þjóðfundi og þjóðaratkvæðagreiðslur, og ekki má gleyma ungafólkinnu. Ég stend fyrir endurskoðun heilbrigðiskerfisins, menntakerfisins og hvar sem við teljum þörf á endurbótum.
Forsetinn er í mínum huga sameiningartákn þjóðarinnar og andlegur leiðtogi, öryggisventill gagnvart Alþingi, landsmóðir, fulltrúi landsins út á við og fyrirmynd landsmanna.
Ég ætla að fara í framboð og sýna fólki að það sé hægt að bjóða sig framm án styrkja!!!
Endilega deilið svo fólk með sömu framtíðarsýn viti að gildi þeirra eru í framboði.
Aralíus Gestur Jósepsson Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans
Tilkynning frá stjórnanda þessarar vefsíðuVið höfum lokað þessari undirskriftasafnan og fjarlægt persónulegar upplýsingar um undirritendur.Almenn persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (GDPR) krefst lögmætrar ástæðu fyrir geymslu persónuupplýsinga og að upplýsingarnar séu geymdar eins stutt og mögulegt er. |