Ísland fyrir Úkraínu 🇺🇦
Við skorum á Íslensk stjórnvöld að vera leiðandi í refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna innrásar þeirra í Úkraínu.
Úkraína er líkt og Ísland, frjálst, sjálfstætt ríki og er innrásin túlkuð sem ógn við öll frjáls ríki.
Ísland var leiðandi aðili með stuðningi sínum fyrir sjálfstæði Eystrarsaltsríkjanna.
Íslendingar eru stríðslaus þjóð og hvetja til friðar, með því að beita hörðum viðskiptaþvingunum:
Að einangra Rússland pólitískt og slíta öllum samskiptum
Aftengja Rússland frá SWIFT
Að finna nýjar leiðir til þess að einangra Rússa frá öllum viðskiptum í alþjóðasamfélaginu
Með þessu sýnir Ísland aftur leiðandi vinnubrögð á heimsmælikvarða með að styðja við sjálfstæðar þjóðir í Evrópu
Katrín Hjartardóttir & Inga Minelgaite Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans