Mótmæli íbúa gegn fyrirhugaðri breytingu borgaryfirvalda á deiliskipulagi við Hlíðarenda reit I.

Breyting á deiliskipulagi.

Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. október 2021 og borgarráðs Reykjavíkur þann 18. nóvember 2021 var samþykkt að auglýsa tillögu um breytingu á deiliskipulagi að Hlíðarenda reit I. Reitur I er grænt svæði vestan við Haukahlíð í átt að Háskóla Íslands.

Í tillögunni felst að breyta opnum reit I í íbúðarlóð sem gerir ráð fyrir byggingu allt að 5 hæða háu fjölbýlishúsi.

Þessari breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda mótmælum við íbúar hverfisins  harðlega með eftirfarandi rökum:

  1. Reitur I er eina græna svæðið utan við inngarða fjölbýlisreita að Hlíðarenda. Svæðið er mikið notað á hverjum degi af íbúum hverfisins, börnum og fullorðnum. Frekar mætti koma þar fyrir leiktækjum á en á þeim er algjör skortur í hvefinu og girða svæðið af.
  2. Á sumrin er sólargangur á græna svæðinu frá morgni til kvölds sem er andstætt við inngarða hverfisins  og er þess vegna er það mikið notað til leikja á björtum sumardögum.
  3. Ef þessi breyting á deiliskipulagi kæmi til framkvæmda myndi hún kollvarpa þeirri fyrirætlun sem borgaryfirvöld settu sjálf fram þess efnis að Hlíðarendi væri grænt svæði. Því með því að byggja á reit I væri útrýmt eina græna svæði hverfisins og byggðinni breytt í svefnhverfi í miðri borg.
  4. Öll bílastæði hverfisins eru nú þegar fullnýtt og meira til, þannig að ljóst er að þessi breytingartillaga borgaryfirvalda, myndi gera illt verra og auka enn á skortinn.
  5. Öll verslunarrými sem nú eru til staðar hafa í raun engan aðgang að bílastæðum eða vörumóttöku og því hverfandi líkur á að hægt sé að nýta  rýmin í mikilvæga þjónustu við íbúana. Fyrirhuguð breyting á deiliskipulagi myndi enn auka á þennan skort.
  6. Flestum íbúm Hlíðarendasvæðisins sem málið varðar, var tilkynnt af fasteignasölum að reitur I yrði grænn. Margir fjárfestu í íbúðum hverfisins vegna þessara yfirlýsinga. Það er því ekki laust við að íbúum finnist þeir hafa verið blekktir, þegar fjárfest var í framtíðareign. Hlíðarendi á samkvæmt núverandi skipulagi, að vera blönduð byggð atvinnuhúsnæðis og íbúðarbyggðar Ef þessi breyting á deiliskipulagi nær fram að ganga, kollvarpar hún þessum yfirlýstum markmiðunum um lifandi byggð.

Rósa Ól0f Ólafíudóttir    Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans