Björgum Bíó Paradís
Athugasemdir
#3
Ég tel það gríðarlega mikilvægt að halda þessu frábæra starfi gangandi - þarna býr ótrúlega mikil þekking og reynsla sem má ekki glatast. Nú er sífellt meiri áhersla á nýsköpun og að búa til tækifæri og Bíó Paradís hefur sannarlega sýnt fram á að þar búa tækifæri og virkilega fjölbreyttur og breiður hópur sem nýtur góðs af því starfi.(Reykjavík, 2020-05-08)
#12
Bíóparadís er nauðsyn.(reykjavík, 2020-05-08)
#21
Það er algjörlega ömurlegt að menningarbatterí - eitt af fáum sjálfstæðu stuðningsappatum okkar við menningu og listir sé að hverfa af sjónarsviðinu. Skapandi geirinn er auðlynd og mikilvægust af öllum þvi hun snertir fólk með beinum hætti og eykur lífsgæði - en það er það sem við viljum í íslensku samfélagi.(Borgarnes, 2020-05-08)
#23
Það er stór missir fyrir menningarlíf Reykvíkinga ef Bíó Paradís hverfur.(Reykjavík, 2020-05-08)
#30
Bíó Paradís er lífsnauðsyn fyrir menningu landsins!(Reykjavík, 2020-05-08)
#38
Bíó Paradís er mikilvægt hús og menningarstofnun sem að Íslendingar ættu að vera stoltir af að eiga til staðar.(Kaupmannahöfn, 2020-05-08)
#39
Bíó Paradís er dásamlegt samkomuhús fyrir þá sem elska kvikmyndir. Bíóið hefur einnig verið mikilvægur vetvangur fyrir sýnileika hinna ýmsu jaðarhópa og fjölbreytileika mannlífsins, sem önnur bíóhús á Íslandi gera ekki skil í sama mæli. Björgum Bíó Paradís!!!(Reykjavík, 2020-05-08)
#41
Ég skora á hæstvirtan menningar- og menntamálaráðherra Lilju Alfreðsdóttur um að láta þettta ekki gerast á sinni vakt. Þetta er alvöru krísa sem á að afstýra strax!(Reykjavík, 2020-05-08)
#57
Bíó Paradís sinnir starfsemi sem er allri íslenskri menningu afar mikilvæg Engin önnur starfsemi á Íslandi getur farið með tærnar þar sem Bíó Paradís hefur hælana. Ætlum við að standa öðrum þjóðum jafnfætis á menningarlegum grundvelli þá þurfum við að vernda þessa starfsemi og styrkja.(Hafnarfjörður, 2020-05-08)
#59
Það er of sorglegt að missa þetta bíó(Hafnarfjōrður, 2020-05-08)
#66
Ég lít á Bíó Paradís sem mikilvæga menningarstarfsemi og auðlind í miðbænum sem býður uppá endalausa möguleika. Það væri stórslys að láta þetta kvikmyndahús loka.(Reykjavík, 2020-05-08)
#73
Bíó Paradís skiptir máli.(Reykjavík, 2020-05-08)
#74
Mikil og merkileg menningarstarfsemi sem má ekki hverfa!(Reykjavik, 2020-05-08)
#77
Ég elska Bíó Paradís!(Reykjavik, 2020-05-08)
#81
Ég skrifa undir því það er menningarslys að loka þessu frábæra bíó!(London, 2020-05-08)
#82
Bíóparadís er hjarta borgarinnar fyrir mig og marga aðra og gluggi út í heim sem er nauðsynlegur á svona lítilli eyju. Það hefur tekið mörg ár að byggja upp þennan ķúltur. Bíóið er ómetanlegt og við megum ekki missa það.(Reykjavík, 2020-05-08)
#84
Það er afar mikilvægt fyrir menningu landsins að Bíó paradís fái að lifa áfram. Merkilegt og faglegt starf hefur farið þar fram sem hefur lift þessum menningageira upp á annað plan í menningalífi landsins. Einnig er þessi staður mikilvægur mörgu fólki vegna þess hvað hann hefur upp á að bjóða félagslega, menningalega og vegna hágæða skemmtanagildis. Það verður skömm af því ef þessi starfssemi verður látin fjara út og taki þeir þá skömm til sín sem eiga!(Reykjavík, 2020-05-08)
#100
Eina bíóið með sál og alvöru bíómyndir(Kopavogur, 2020-05-08)
#104
Þetta er eina húsið á landinu sem býður uppá svona skemmtun, menningu, líf... og þetta er eini staðurinn á landinu þar sem svona líf getur gengið upp.(reykjavík, 2020-05-08)
#106
Bíóið með bestu myndirnar.(Reykjavík, 2020-05-08)
#107
Bíó Paradís er gríðarlega mikilvægur staður fyrir kvikmyndaiðnaðinn á Íslandi(Reykjavík, 2020-05-08)
#111
Ég skrifa undir af því að það er mikilvægt að kvikmyndahús eins og Bíó Paradís sem hefur stutt við alls konar kvikmyndagerð sé til.(London, 2020-05-08)
#118
Þetta er eina bíóið af viti !(Reykjavík, 2020-05-08)
#120
Menningarlíf í Reykjavík verður snautt ef Bíó Paradís lokar fyrir fullt og fast. Þarna á að grípa inn í og nota opinbert fé til að koma mikilvægari menningarstofnun til bjargar. Ég vil að skattfé mínu verði varið í það, þetta er brýnt verkefni.(Reykjavík, 2020-05-08)
#126
Ég stunda nám við Kvikmyndaskóla Íslands og stunda það mikið að fara í Bíó Paradís. Þetta er partur af náminu og er mikilvægt fyrir kvikmyndaskólann, bæði hátíðir, útskriftir og nám. Bíó Paradís er miðpunktur miðbæsins.(Reykjavík, 2020-05-08)
#135
Listrænt bíó í miðborginni er forsenda fyrir því að vera borg!(Reykjavík, 2020-05-08)
#139
Thad er brádnaudsynlegt fyrir kvikmyndamenningu landsins ad hafa Bíó Paradís starfandi um ókomna tíd.(Emmaboda, 2020-05-08)
#141
Bíó Paradís er mikilvæg miðstöð í menningu í Reykjavík og nauðsynleg fyrir kvikmyndauppeldi og fjölbreytni.(Reykjavík, 2020-05-08)
#146
Menningarlegs mikilvægis þessarar stofnunar(Seyðisfjörður, 2020-05-08)
#149
Bíó Paradís er ómissandi í menningarlífi samfélagsins alls. Ef Bíó Paradís myndi hverfa frá þá værum við að missa mikla auðlind úr menningunni okkar.(Hafnarfjordur, 2020-05-08)
#161
Af því að Bíó Paradís er svo ótrúlega mikilvæg menningarstofnun í hjarta Reykjavíkur.(Reykjavík, 2020-05-08)
#164
Þetta er alveg nauðsynlegt menningarflóru Íslands(Keflavík, 2020-05-08)
#168
Ég er mikill aðdáandi Bíó Paradís og tel það gegna mikilvægu hlutverki í að efla kvikmyndamenningu á Íslandi.(Akureyri, 2020-05-08)
#180
Bíó Paradís er menningargimsteinn Reykjavíkur.(Kópavogue, 2020-05-08)
#183
Ég skrifa undir vegna þess, eins og segir, að þarna hefur verið öflugt uppbyggingarstars í þágú íslenskrar bíomenningar og -fræðslu og uppbying við eflingu alþjóðatengsla og alþjóðastyrkja. Opnum Bíó Paradís STRAX.(Kópavogur, 2020-05-08)
#189
Bíó Paradís er hornsteinn í menningarlífi Reykvíkinga og Íslendinga. Þetta er félagsmiðstöð og athvarf menningarvita og kvikmyndaunnenda. Miðbærinn er ekki kúl án hennar.(Reykjavík, 2020-05-08)
#193
Ég elska Bíó Paradís.(Selfoss, 2020-05-08)
#198
Til að styðja við fjölbreytileika í bíó- og menningarlífi borgarinnar.(Reykjavík, 2020-05-08)
#200
Af því(Reykjavík, 2020-05-08)