Við fordæmum aðfarir, fangelsun og ofsóknir gegn mæðrum og börnum

Athugasemdir

#1803

Enn ein birtingarmynd ofbeldis gagnvart konum og börnum stöðvum kynbundið ofbeldi!

Klara Þórhallsdóttir (Reykjavik, 2023-12-04)

#1807

Þetta er bara skelfilegt og Norðmenn greinilega aftarlega á merinni með ofbeldi

Guðlaug Baldursdóttir (Reykjavík , 2023-12-04)

#1810

Að mér fynst Að börnin eiga rödd og á hana á að hlusta

Díana ösp m Jónínudóttir (Súðavík , 2023-12-04)

#1813

Börnin hafa vilja og það þarf að virða og hlusta á börnin. Hvaða móðir myndi ekki berjast fyrir öryggi barna sinna ef hún veit að börnin sín eru í hættu eða vanlíða. Ótrúlega hugrökk og sterk móðir hún Edda og ég sendi henni allan minn stuðning og hvet fólk að gera hið sama! 🙏

Sigrún Guðjohnsen (Kópavogur, 2023-12-04)

#1818

Þetta er valdníðsla

Sighvatur Ívarsson (Reykjavík , 2023-12-04)

#1819

ég fordæmi, viðbjóðslegt ofbeldi á saklausum börnum

Claudia Luckas (Garðabær, 2023-12-04)

#1831

Hryllilegar aðferðir notaðar gegn Eddu Björk og hennar sonum. Hvar í fjandanum var islanska barnaverndunarnefndin, sem á að rannsaka alla málastaði, yfirheyra kennara, lækna, fólk tengt þessari fjölskyldu og fjölskyldumeðlimum?! Þetta er allt svo yfirgengilegt og illa farið með af íslenskum aðilum gegn íslenskri móður og fjölskyldu hennar, sem eru ekki að gera neitt nema vernda þessa stráka og gera allt sem hægt er fyrir þá, bæði andlega og líkamlega, sem ekki var að gerast í umsjá föður þeirra í Noregi.
Það virðist sem íslensk yfirvöld hafi hreinlega sett rófuna milli lappanna og látið
norsk yfirvöld taka Eddu Björk án þess vernda hana sem íslenskan ríkisborgara gegn ofbeldi og ágengni norskra yfirvalda. Hefði íslenska barnaverndunarnefndin VIRKILEGA rannsakað ástand þessara þríggja stráka í hvert skipti sem móðir þeirra fékk að umgangast þá, hefði þetta mál farið á annan veg.

Katherine Finnsson (Kópavogur og, 2023-12-04)

#1834

Ég fordæmi aðför yfirvalda að móður og börnum.

Baldvina Sverrisdóttir (Seltjarnarnedi , 2023-12-04)

#1846

Verndum íslenskar fjölskyldur með því að sjá um þeirra mál á Íslandi!

Harpa Hilmarsdóttir (Reykjavík, 2023-12-05)

#1847

Hér eru bæði íslensk og norsk yfirvöld sek um skelfilegt ofbeldi.

Dóra Hjálmarsdóttir (Reykjavík , 2023-12-05)

#1860

Ég tek afstöðu með Eddu og börnunum sem vilja ekki vera hjá föður sínum. Ég tek afstöðu með þeim gegn aðför Noregs að þessum íslensku ríkisborgurum og ráni á mannréttindum þeirra. Þetta er enn eitt málið sem fær undarlega meðferð fyrir utan landsteinana og ekki virðist það hreyfa við íslenskum stjórnvöldum sem eiga að skipta sér að sínum ríkisborgurum og hvernig farið er með þá. Þetta mál er afar sorglegt og ljótt af hálfu bæði Íslands og Noregs.

María Helgadóttir (Reykjavík, 2023-12-06)

#1861

Mér ofbýður aðfarirnar að þessari konu þar sem það er alveg ljóst að börnin vilja vera hjá henni.

Fridgerdur Gudmundsdottir (Reykjavík, 2023-12-06)

#1864

Hér er mikið óréttlæti.

Omar Hersir (Reykjavik, 2023-12-06)

#1873

stjórnvöld eiga ekki að komast upp með að reyna skemma fyrir íslenskum fjölskyldum

Jóhann Hrafn Ragnarsson (Rkv, 2023-12-08)

#1883

Vernda þarf mæður og óskir barna. Tillit til aðstæðna þeirra er ekkert - þetta þarf að leiðrétta!

Lukka Sigurðardóttir (Reykjavik , 2023-12-11)

#1893

Hræðileg aðför að móður að vernda börn sín. Hugsum um börnin í þessu máli og verndum þau.

Hjördís Erlingsdóttir (Reykjavík, 2023-12-14)

#1894

Ég finn til með Eddu Björk og börnum hennar vegna þessa máls. Hún er þó móðir þeirra.

Bergþóra Úlfarsdóttir (Pantin, 2023-12-16)

#1896

Allt við þetta mál er ósanngjarnt og ekki hlustað á börnin.

Guðrún Linda Björgvinsdóttir (Selfoss, 2023-12-18)



Greidd auglýsing

Við munum kynna þennan undirskriftalista fyrir 3000 aðilum.

Lærðu meira...