#BurtmeðBirgi
Við undirrituð skorum á Birgi Þórarinsson að segja sig frá þingmennsku.
Ljóst er að Birgir Þórarinsson bauð sig fram í nýliðnum alþingiskosningum undir fölsku flaggi. Hann svindlaði á kjósendum með því að láta kjósa sig fyrir flokk sem hann yfirgaf svo strax að kjöri loknu. Það teljum við vera alvarlega aðför að trausti kjósenda á framboðum og kosningum í lýðræðisríki. Við getum ekki hugsað okkur að það verði látið viðgangast.
#BurtmeðBirgi er þverpólitískur hópur fólks sem ofbýður framkoma þingmannsins í garð kjósenda og aðför hans að rótum lýðræðisins.
#BurtmeðBirgi Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans