Við fordæmum aðfarir, fangelsun og ofsóknir gegn mæðrum og börnum
Athugasemdir
#1401
ég er alfarið á móti hverslags ofbeldi og valdbeitingu sem beitt er gegn börnum og í þessu tilfelli mæðrum þeirraValdís Ingibjörg jonsdottir (hraukbajarkot 2, 2023-12-01)
#1423
Ragga er vinkona min ig ég stend með henni og þvi sem er réttLilja Skarpaas Þórólfsdóttir (Reykjavík, 2023-12-01)
#1425
Hvattur af fólki sem ég treystiMagni Hjálmarsson (Fjallabyggð , 2023-12-01)
#1443
Þetta er ofbeldi og íslensk stjórnvöld eiga að gera beturSólrún Rós Eiríksdóttir (Reykjavík, 2023-12-01)
#1448
Aðfarirnar að Eddu eru ógeðslegar og aðgerðir gegn börnunum enn verriÁrni Árnason (Kópavogur , 2023-12-01)
#1457
Það á að hlusta á börnin og sjá til þess að þau hafi frið heim hjá sér. Ofsóknir á ekki að líða.Þorbjörg Gísladóttir (Selfoss , 2023-12-01)
#1458
Börn eiga alltaf að njóta vafans, börn eiga að hafa rétt, börn eiga að hafa rödd og okkur ber lagaleg skilda að hlusta og gæta þess að tryggja öryggi þeirra. Það eru mannréttindi en ekki forréttindi að vera öruggur, eins og staðan er núna þá virðist þetta vera forréttindi á Íslandi. Svo virðist sem börn hafi engann rétt á Íslandi, samkvæmt barnasáttmála sameinuðu þjóðanna (sem er lögfestur á Íslandi) ber íslenska ríkinu skilda að tryggja að öll börn séu örugg og gætt sé hagsmuna barnanna en ekki foreldraGuðbjörg Halldórsdóttir (Borgrnes, 2023-12-01)
#1460
Þetta mál veldur mér áhyggjum og svo virðist sem hér sé um hræðilegar aðfarir að ræða, gegn konu sem hugsar um hag barna sinna.Margrét Sævarsdóttir (Flúðir, 2023-12-01)
#1477
Þettq er ofbeldiGuðrún Þóroddsdóttir (Reykjanesbær, 2023-12-01)
#1495
Það er allt rangt við þettaSylvía Rán Ólafsdóttir (Reykjavík, 2023-12-01)
#1496
Foreldrar drengjanna eru Íslenskir, ekki Norskir. Og virða ber ósk barnanna um hvar þaug vilja búa. Faðirinn getur auðveldlega flutt til Íslands, ef hann vill samvinnu í uppeldi barnanna.Anita Holm (Töreboda, 2023-12-01)
#1499
Ég var barn sem neitað var að vernda og látin búa við ofbeldi. Það er kominn tími til að þetta stoppi og börn fái að njóta vafans.!Stefanía Ósk (Höfn, 2023-12-01)
#1509
Við þurfum að stoppa að fangelsa saklaust fólk og það strax og hætta að senda fólk út sem eru að berjast fyrir börnin sínTinna Mirjam Reynisdóttir (Höfn , 2023-12-01)
#1518
Af því ég mótmæli þessari framkomu yfirvalda við Eddu og börnin hennar. Hvað einræðis-kúgunar ríki búum við í?Oddrún Elfa Hörgdal Stefánsdóttir (Reykjavik, 2023-12-01)
#1534
Framselja íslenskum ríkisborgara úr landi er skömmValdís Sigurþórsdóttir (Kópavogi, 2023-12-01)
#1536
Ég vil að vilji barna í forræðisdeilum verði virt.Margret Annie (Alicante , 2023-12-01)
#1538
Þetta er ekki réttlæti. Leyfum börnunum að velja.Sandra Jónsdóttir (Reykjavík, 2023-12-01)
#1539
Ég skrifa undir vegna þess að ég tel vera brotið á Börnum þessara mæðra. Er þetta enn eitt málið sem börnum verða dæmdar hár bætur vegna þess að þarna er brotið á þeim. Samkvæmt ACE stigunum munu þessi börn þurfa að takast á við þetta áfall og mjðg líklega fleiri áföll. Knús til ykkar þolendaJóhanna Sigurbjörnsdóttir (Reykjanesbær, 2023-12-01)
#1543
Að vilja barnanna sé framfylgtAgnes Þórhallsdóttir (Reykjavík, 2023-12-01)
#1563
Mér finndt forkastanlegt hvernig komið er fram við Eddu varðandi forræðisdeilu hennar við fyrrv. manninn hennar, þetta er ekkert nema undirlægjuháttur íslenskra stjórnvalda við norsku barnaverndina sem er heimsfræg fyrir að sleppa engum börnum frá Noregi þó farið sé illa með þau. Þetta á ekkert skylt við vernd fyrir börnin. Þetta á bara alls ekki að eiga sér stað.Sigrun Magnúsdóttir (Reykjavík, 2023-12-01)
#1567
Allir eiga rétt á að vernda börnin sínKolbrún Ônnudóttir (Akranes , 2023-12-01)
#1578
Mér blöskrar þessi framkoma gagnvart móður og börnum. Hvar er barnasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna? Er hann virtur að vettugi?Jóna Daðey Hálfdánardóttir (Reykjavík, 2023-12-01)
#1584
hrædd móðir sem berst fyrir börnunum sínum er ekki glæpamaður. Orðlaus og sorgmædd yfir þessum hörmungum.Gudrun arny Karlsdottir (Hafnarfjordur, 2023-12-02)
#1600
Ég vil að við sameinumst um að frelsa börnin og gefa þeim og móður þeirra réttlæti til að búa og vera saman sem ætti að vera lágmarksréttindi, einnig að stjórnvöld girði sig í brók og sjá til að réttur þeirra sem íslenskir ríkisborgarar séu virtir.Elsku fjölskylda ég hef ykkur í bænum mínum 💖
Valgerdur O Steingrimsdottir (Los Álcazares , 2023-12-02)