Ég styð bann við umskurð á heilbrigðum kynfærum drengja á Íslandi

Athugasemdir

#408

Algjörlega tilgangslaust. Àràs á òmàlga barn sem getur ekki varið sig eða gefið álit eða skoðun á málinu.

(Akranes, 2018-03-10)

#409

Þetta er með öllu ósiðlegt, hver og einn skal hafa rétt til eigin ákvarðana.

(Reykjavík, 2018-03-10)

#419

Þetta er misþyrming á ómálga börnum og kemur trúarbrögðum ekkert við. Þetta er aldargömul bábylja.

(Akranes, 2018-03-10)

#420

Bann við umskurði beggja kynja

(þingeyri, 2018-03-10)

#421

Þarft málefni

(Reykjavík , 2018-03-10)

#424

Það brýtur gegn sjálfsákvörðunarrétti að gera óþarfa og óafturkræfa breytingu á líkama manneskju sem er ófær um að veita samþykki. Sjálfsákvörðunarréttur er ófrávíkjanlegur (unalienable) réttur.

(Reykjavik, 2018-03-10)

#432

Börn eru frjálsbornir einstaklingar,foreldrar eru leiðbeinendur og gæta þeirra til fullorðinsára.

(Fosnavogur, 2018-03-10)

#435

Þetta er helvítis sori

(Akranes, 2018-03-10)

#457

Það er mín skoðun að enginn hafi rétt til að framkvæma óafturkræfar aðgerðir á ungabörnum, hvorki í nafni trúar, haturs eða af neinum ástæðum.

(Ísafirði, 2018-03-10)

#460

Ég er alfarið á móti ónauðsynlegum og óafturkræfum aðgerðum á ómálga börnum sem geta skaðað þau fyrir lífstíð!

(Búðardalur, 2018-03-10)

#463

Á að vera val á fullorðinsárum.

(Hafnarfjörður , 2018-03-10)

#467

Limlestingin er rökrétt útaf þúsund ára gamalli bók. Á sér enga stoð í raunveruleikanum árið 2018.

(Reykjavík, 2018-03-10)

#474

Því þetta er mannvonska !

(Reykjavík, 2018-03-10)

#477

Ég er á móti misþyrmingum á börnum.

(Reykjavík, 2018-03-10)

#478

Heilbrigð skynsemi.

(Hafnarfjörður, 2018-03-10)

#479

Líkami nýfæddra drengja er þeirra eigin, ekki eitthvað sem foreldrar ættu að mega breyta vegna persónulegra skoðanna sinna án læknisfræðilegrar ástæðu. Ég á tvo litla drengi og hef engan áhuga á að hafa svo víðtækan rétt yfir þeim.

(Solna, 2018-03-10)

#492

Mér finnst það vera mannréttindi að menn fái að taka þessa ákvörðun sjálfir þegar þeir hafa aldur og þroska til.

(Reykjavik, 2018-03-10)

#499

umskurður er viðbjóður. Fólk að skipta ser að kynfærum barna? Svo verður kynlíf verra fyrir folk sem er umskorið það er tilfining sem fer við þetta svo það er verið að skipta sér að því hversu mikla löngun fólk hafi fyrir kynlífi. Bull og vitleysa og eldgömul hefð sem á að deyja.

(Hafnarfjörður, 2018-03-10)

#515

Mér finnst að þetta eigi að vera val barnsins "drengsins"

(Stokkseyri, 2018-03-10)

#516

Er á móti ofbeldi ,svo ég tali nú ekki um á litlum börnum .

(Selfoss, 2018-03-10)

#537

Fólk á að hafa val um varanlega aðgerð sem þessa, þegar það hefur aldur til.

(Bolungarvík, 2018-03-10)

#538

Þetta er algjörlega óþörf aðgerð og getut valdið drengjum miklum erfileikum allt lifið. Gyðingar gera þetta af trúarástæðum og ætti þeir að gangast undir þessa aðgerð þegar þeir hafa vit og þroska ti að taka ákvörðun. Bandarikjamenn byrjuðu á þessu eftir að hermenn komu heim ur stríði og þeir voru með miklar sýkingar undir forhúðinni sem sagt kynsjúkdóma eftir nauðganir og viðbjóð sem fylgir stríðum, síðan varð þetta hefð hjá þeim.

(REYKJAVÍK, 2018-03-10)

#544

Umskurður er rangur sama hvaða kyn á í hlut

(Reykjavík, 2018-03-10)

#571

Heilbrigð kynfæri drengja eiga að vera látinn vera og má sá sem á kynfærinn fara sjálfur í umskurð ef hann er orðinn lögráða, náð 18 ára aldri

(vestmannaeyjum, 2018-03-10)

#585

Ekki á að leyfa foreldrum eða trúarsöfnuðum að taka óafafturtækar ákvarðanir fyrir ungabörn

(Akranes, 2018-03-10)

#599

Mér finnst þetta vera mjög rangt og manneskjan á að fá að ráða sjálf þegar hún verður eldri hvort hún ætli að taka þátt í svona trúarrugli.

(Vestmannaeyjar, 2018-03-10)