Ég styð bann við umskurð á heilbrigðum kynfærum drengja á Íslandi

Athugasemdir

#619

Við erum komin lengra en þetta sem mannkyn að afmynda líkama barna vegna trúa eða hefða.

(Akureyri, 2018-03-10)

#620

Ofbeldi gegn börnum sem ekki á að líða!

(Buenos Aries, 2018-03-10)

#624

Ég vill að barnið hafi tækifæri á að taka sjálft ákvörðun um málið.

(Hella, 2018-03-10)

#629

Þetta er viðbjóður og ekkert barn á að lenda í þessu

(Reykjavík, 2018-03-10)

#630

Barnaníð er aldrei réttlætanlegt þó það séu einhverjir sem vilji halda í einhverjar hefði sem eru komnar úr fornöld

(Keflavík , 2018-03-10)

#636

Þessu þarf að útrýma eins og öðrum hindurvitnum.

(Akranes, 2018-03-10)

#642

Ég er umskorinn 25 ára af læknisfræðilegum ástæðum, ég get ekki séð af hverju nokkur maður ætti að vilja vera umskorinn ef fúsum og frjálsjum vilja nema hafa verið með of þrönga forhúð eins og ég

(Reykjavík, 2018-03-10)

#645

Ég styð sjálfsákvörðunarrétt einstaklings þegar kemur að læknisfræðilega ónauðsynlegu og óafturkræfu inngripi í líkama viðkomandi.

(Hafnarfjörður , 2018-03-10)

#648

Umskurður er viðbjóður, ekkert á að vera gert við líkama á manneskju ef sú manneskja getur ekki mótmælt því.

(Akureyri, 2018-03-11)

#654

Ég er á móti umskurði á kynfærum ungra drengja á
Íslandi..

(Reykjanesbær, 2018-03-11)

#656

Limlestingar af trúarlegum undirrótum án samþykkis hluteigansi eiga ekki rétt á sér. Sama hverjar þær eru eða á hverjum þær eru framdar hvort sem er á drengjum, stúlkum, fullorðnum eða málleysingjum. Og eiga í ÖLLUM tilfellum að vera refsiverðar.

(Selfoss, 2018-03-11)

#664

Ég er á móti umskurði án samþykkis þess sem á að umskera!

(Hafnarfjörður, 2018-03-11)

#670

Ég vil að kraftar heilbrigðisstarfsmanna séu nýttir til að lækna sjúka og meidda en ekki skemma það sem heilt er.

(Kópavogur, 2018-03-11)

#672

Umskurður á heilbrigðum kynfærum er 100% óþarfur til að halda fullu hreinlæti. Umskurður getur verið mjög hættulegur og valdið sýkingum, tilfinningarmissi, getuleysi og jafnvel dauða. Aðgerðin er mjög kvalafull, svo enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum hana nema velja það sjálfur þegar hann er orðinn sjálfráða.

(Borgarnes, 2018-03-11)

#683

Börn eiga rétt á að velja sjálf

(Reykjavík , 2018-03-11)

#684

Umskurður barna er brot á þeirra mannréttindum

(Reykjanesbæ, 2018-03-11)

#700

Drengir eiga að áhveða þetta sjálfir þegar þeir verða sjálfráða

(Kópavogur, 2018-03-11)

#706

Móti öllu ofbeldi, menn geta valið af láta um skera sig þegar þeir verða fullorðnir.

(Reykjavík, 2018-03-11)

#713

Að ráðast á smábörn og meiða þau í nafni trúar á ekki að eiga sér stað. Það er ljótt og ómanneskjulegt.

(Akureyri, 2018-03-11)

#720

Réttur fólks til trúfelsis gefur því ekki leyfi til að skera hluta af líkama annarrar manneskju.

(Reykjavík, 2018-03-11)

#731

Ég skrifa undir vegna þess að mér þykir það sjálfsagt og eðlilegt og ég er almennt á móti fullkomlega ónauðsynlegum aðgerðum - sérstaklega þar sem börn eiga í hlut.

(Akranes, 2018-03-11)

#736

Ég vil að strákar hafi val þegar þeir eru 18 ára

(Mosfellsbær, 2018-03-11)

#743

Því að þetta er ofbeldi gegn börnum.

(Sandgerði, 2018-03-11)

#744

Ég skrifa undir vegna þess að vernda þarf rétt drengja til að taka ákvarðanir um eigin kynfæri þegar þeir eru fullorðnir.

(Reykjavík, 2018-03-11)

#745

Sem heilbrigðisstarfsmaður get ég ekki séð nein haldbær rök fyrir því að umskera heilbrigt barn.

(Garðabær, 2018-03-11)

#747

Umskurður er tímaskekkja

(Akureyri, 2018-03-11)

#749

Þessi aðgerð leiðir til þess að "kóngurinn" missir næmni vegna stöðugs núnings. Hvað varðar heilbrigðissjónarmið þá sé ég ekki hvernig forhúð á að hafa áhrif á krabbameinsmyndun og hvað varðar hreinlæti þá þarf að hreinsa umskorin typpi alveg eins og óumskorin. Þessi aðgerð á ekki rétt á sér og þó það seú vandamál vegna of þröngrar forhúðar þá er nóg að vkera smá til að víkka en algjör óþarfi að taka allt. Karlmenn eiga að hafa val þegar þeir verða einmitt fullorðnir karlmenn.

(Reykjavík, 2018-03-11)

#758

Ég skrifa undir vegna þess að ég styð við mannréttindi barna til þess að taka þessa ákvörðun sjálf við 18 ára aldur!

(Grindavík, 2018-03-11)

#763

Ungabörn þurfa vernd, ekki pyntingar og likamsafskræmingar.

(Reykjavík, 2018-03-11)

#767

Þetta er ógeðslegt

(Seltjarnarnes, 2018-03-11)

#773

Þetta er ómannúðlegt og misnotkun svo ekki sé meira sagt!

(Akureyri, 2018-03-11)

#776

Vegna þess að barnaníð er viðbjóðslegt og getur aldrei haft eitthvað með trú að gera

(Blönduós, 2018-03-11)

#788

Ég er á móti umskurð drengja..

(Ísafirði, 2018-03-11)

#795

Tilgangslaus, sársaukafull og hættuleg aðgerð án samþykkis

(Reykjavík, 2018-03-11)