Björgum Bíó Paradís

Athugasemdir

#1814

Bíó Paradís er ein mikilvægasta menningarstofnun landsins og því má þetta ekki gerast!

Þorvaldur Sigurbjörn Helgason (Reykjavík, 2020-05-11)

#1835

Bíó Paradís er hornsteinn kvikmyndamenningar á Íslandi

Hjalti Stefán Kristjánsson (Rekjavík, 2020-05-12)

#1836

Bíó Paradís er ómissandi í íslensku menningarlífi, eina kvikmyndahúsið sem sýnir þann metnað að gera listrænum myndum frá öllum heimshornum hátt undir höfði og sinna fræðslustarfi.

Margrét Helga Hjartardóttir (Reykjavík, 2020-05-12)

#1842

Þessari menningarstofnun má ekki loka.

Hallur Guðmundsson (Hafnarfjörður, 2020-05-12)

#1847

Ég skrifa undir vegna þess að það yrði mikil eftirsjá af Bíó Paradís hjá mér og mínum nánustu.

Kristína Berman (Reykjavík, 2020-05-12)

#1848

Ég skrifa undir vegna þess að ég elska bíó paradís og það er enginn staður eins og það. Það er svo mikil menning þarna, staðsetning er skemmtileg, húsið er fallegt og stemningin er ólík öllum öðrum stöðum. Bíó paradís er hálfgert heimili nr. 2 hjá mér og vinum mínum.

Arndís Arnarsdóttir (Reykjavik, 2020-05-12)

#1866

Vegna sérstöðu Bíó Paradís í að sýna vandaðar myndir sem ekki rata í stóru bíóinn en eru menning sem við viljum ekki missa af.

Þór Ottesen Pétursson (Kópavogur, 2020-05-12)

#1872

LIFI BÍÓ PARADÍS!
Kvikmyndahús með sérstæðu sem finnst hvergi annarstaðar hér á landi en er mikilvægt framlag til fjölbreyttrar menningar í nútímasamfélagi.

Hólmfríður Halldórsdótttir (Vatnsleysuströnd, 2020-05-12)

#1876

Ég skrifa undir vegna þess að Bíó Paradís gegnir lykilhlutverki í að tryggja íslendingum fjölbreytta kvikmyndaflóru og hefur mikið aðdráttarafl í miðbæ Reykjavíkur. Án Bíó Paradísar verður framboð kvikmynda á landinu fábrotnara. Nemendur kvikmyndaskólans og aðrir nemendur borgarinnar nýta sér líka forsal bíósins til verkefnavinnu.

Þórir Snær Sigurðarson (Hafnarfjörður, 2020-05-12)

#1878

Bíó paradís er frábært, ómissandi að geta farið á gamlar og góðar myndir, nýjar og öðruvísi í kósí stemmningu.

Perla Asgeirsdottir (Reykjavik, 2020-05-12)

#1902

Bíó Paradís er besta kvikmyndahús sem ég hef farið í. Íslenska menningin og tilfinningin er sterk þar og það er ekkert nema góður heimafílíngur þar. Bíó Paradís á sér sérstakan stað í hjarta mínu.

Sara Berglind Ómarsdóttir Saenz (Reykjavík, 2020-05-12)

#1916

Ég vil hafa svona örðu vísi og frábært bíó áfram í bænum

Guðný Pálsdóttir (Reykjavik, 2020-05-12)

#1917

Bráðnauðsynlegur hluti af Reykjavíkinni minni!!

Valdís Björt Guðmundsdóttir (Reykjavík, 2020-05-12)

#1920

Mikilvæg samfélags- og menningarperla sem má ekki fara úr hrörnandi miðborg!

Ýr Jóhannsdóttir (Reykjavík, 2020-05-12)

#1923

Lifi Bíó Paradís!

Atli Jarl Martin (Reykjavík , 2020-05-12)

#1925

I am from the US and this theatre is my favorite part of Reykjavík. Closing it would be a mistake, as it would deprive both tourists and citizens alike from great and unique cinema.

Samantha Castrale (Yardley, 2020-05-12)

#1926

Bjarga Paradís! Ein helsta stoðin í menningu Reykjavíkur!

Halldór Falur Halldórsson (Reykjavík, 2020-05-12)

#1929

eg elska bio paradís

Elísa Lind Finnbogadóttir (Reykjavík, 2020-05-12)

#1935

Bíó Paradís er eitt mikilvægsta menningarhús landsins og það væri hrein og klár aftaka íslensks menningarlífs að láta það hverfa.
Björgum Bíó Paradís!

Gunnhildur Ægisdóttir (Hafnarfjörður, 2020-05-12)

#1944

Fræbert og öðruvísi bíó.

Steinunn Traustadóttir (109 Reykjavík, 2020-05-12)

#1946

Ég er fastakúnni í bíó Paradís og finnst það ómissandi menningarperla.

Irpa Gestsdóttir (Kópavogur, 2020-05-12)

#1949

Reykjavik er ekki söm án Bíó Paradís, Bíó Paradís er ómissandi!

Gudrún Sveinsdóttir (reykjavik, 2020-05-12)

#1950

Bíó Paradís er gríðarlega mikilvæg menningarmiðstöð sem ber að varðveita.

Guðrún Kristinsdóttir (Mosfellsbær, 2020-05-12)

#1951

Bíó Paradís heldur heiðri kvikmyndalistarinnar uppi á Íslandi. Án þess er kvikmyndahúsamenning á Íslandi nánast einokuð af dægurefni frá Bandaríkjunum.

María Sólrún (Berlin, 2020-05-12)

#1955

Það er hneisa að láta þetta heimili kvikmyndarmenningar loka, alltof oft er lokað gróskustöðum menningar og má þar nefna óteljandi tónleikastaði, en fyrir kvikmyndafólk er einungis Paradís. Einn staður fyrir heila starfsgrein.. allir þeir sem gera sér grein fyrir mikilvægi Íslenskrar kvikmyndargerðar fyrir menningu Íslands, vita hversu mikilvægu hlutverki Paradís gegnir fyrir alla þjóðina.

Andri Enoksson (Rvk, 2020-05-12)

#1956

Bío Paradís er best

Aurora Di Rienzo (Reykjavik, 2020-05-12)

#1960

menningin er okkar verðmætasta auðlind, hún kennir okkur að meta umhverfi okkar og annarra.

Hlynur Snær Andrason (Reykjavík, 2020-05-12)

#1967

Uppáhaldsbíóið mitt og það allra besta á landinu.

Jóhanna María Eyjólfsdóttir (Reykjavík , 2020-05-12)

#1970

Bíó Paradís sinnir mikilvægu menningarstarfi sem enginn annar er að sinna. Að reka þessa starfsemi er mjög ódýrt borið m.v. við hve miklu við eyðum í menningu, listir og íþróttir og hvað þetta gefur okkur í staðin. Við búum í fábrotnu og fámennu samfèlagi sem er í stöðugri samkeppni við miklu stærri borgir sem hafa uppá miklu meira að bjóða. Við þurfum að passa uppá það sem við þó höfum.

Gunnar Aðalsteinsson (Reykjavík, 2020-05-13)

#1984

Bíó Paradís er ein af menningarperlum Reykjavíkurborgar - ekki einungis bíóhús sem sýnir myndir á heimsmælikvarða heldur svo margt fleira, t.d. mennta-og upplýsingamiðstöð, tónleikastaður, listarými og síðast en ekki síst samfélag! Á stormköldum vetrarkvöldum hefur eina líf borgarinnar þrifist og blómstrað í Bíó Paradís. Það er til skammar fyrir íslenska menningu að bjarga ekki Bíó Paradís.

Gígja Jónsdóttir (Reykjavík, 2020-05-13)

#1989

Hreiðar Hugi Hreiðarsson

Hreiðar Hreiðarsson (Reyjavik, 2020-05-13)

#1996

Ég skrifa undir vegna þess að þetta er menningarmiðstöð kvikmyndanna!

Björg Helgadóttir (Mosfellsbær, 2020-05-13)

#1998

Borg er ekki borg án gæða kvikmyndahúss, Reykjavík er ekki Reykjavík án Bíós Paradísar.

Kári Tulinius (Reykjavík, 2020-05-13)



Greidd auglýsing

Við munum kynna þennan undirskriftalista fyrir 3000 aðilum.

Lærðu meira...