Við skorum á Ríkisstjórnina að koma fram við utangarðsfólk með virðingu og láta þau fá þak yfir höfuðið strax

Athugasemdir

#1

Vil að við hjálpum þeim að öðlast betra líf og styðjum til sjálfstæðis og vinnu.

Katrín Þorsteinsdóttir og (Reykjavík , 2022-12-16)

#13

finst tad bara sjalfsagt ad stjornvøld girdi sig i brok og komi framm vid tetta folk eins og manneskjur

Thorsteinn Thorsteinsson (Holbæk, 2022-12-16)

#25

Hver sem er getur orðið heimilislaus

Oskar Oskarsson (Reykjavik, 2022-12-16)

#30

Því mér finnst að allir eigi að eiga rétt á möguleika til betra lífs, og húsaskjól er eitt að grunn þörfum okkar.
Það er auðvitað auðvelt að segja, það hefur verið reynt!! En þó einhverjir hafa náð að skemma, þá á það ekki að bitna á öllum. Það eru margar lausnir við þessum vanda!

Eva Björk Jónsdóttir (Reykjavík , 2022-12-16)

#31

Að það eigi að hjálpa okkar fólki ekki bara flóttafólki

Anna Antonsdóttir (Noregi , 2022-12-16)

#36

Það eiga allir sinn tilverurétt og við eigum ekki að horfa annað, við eigum að hjálpa🥰🥰

Sigrún jóna Samúelsdóttir. (Akureyri , 2022-12-17)

#40

Endalaust bLA bLA bLA JÓLAKAKA ! Láttu VERKIN TALA ‼️ og SKAMMIST ykkar fyrir endaust ALLT AÐGERÐARLEYSIÐ og LÚXUS treatmentið á "flóttamönnunum" á meðan þið SVELTIÐ & látið það fólk sem BYGGÐI LANDIÐ okkar UPP FRJÓSA ÚTI NÚNA ‼️

Sigurlaug Ragnarsdottir (Kópavogur, 2022-12-17)

#41

Allir á íslandi eiga að hafa öruggt skjól. Og hvað þá yfir veturinn!! Við getum þetta hæglega.

Erla Haraldsdottir (Teykjavik, 2022-12-17)

#47

allir þurfa þak yfir höfuðið

Norma Elisabet Samuelsdóttir (Hveragerði, 2022-12-17)

#58

Ég styð fólk!

Finnur Kristjánsson (Reykjavík , 2022-12-17)

#61

Ræikið gæti lagt til þessar 100 mill. sem eiga að fara í fjölmiðilsstyrk ... þjóðhagslega hagkvæmt að bjarga fólki fremur en miðlun sem bjargar engum.

Ragnhildur Gudmundsdottir (Reykjanesbaer, 2022-12-17)

#71

Það á enginn að vera á götunni og ef manneskjur eru veikar eiga þær að vera á vieigandi stofnun til að fá hjálp.það hafa allir þrá um að eiga gott líf❤🙏❤

Lilja Guðmundsdóttir (Reykjavík, 2022-12-17)

#72

Vegna þess að allir menn eiga að hafa sama rétt á mannsæmandi lífi

jakobina Gröndal (Reykjavík, 2022-12-17)

#76

Mér líður mjög illa af því að vita af þessu fólki á götunni,að þau eigi ekkert afdrep og þurfi að búa um sig í allavega afdrepi...ruslageymslum,stigagöngum..ef þau eru heppin,við verðum að virða það að við erum svo mörg og misheppin,sumir verða því miður að helv...fíkninni að bráð af ýmsum ástæðum,ég var að spá í að ef að þeim væri veitt húsnæði (án þess að vera hent út í kuldann um miðjan dag) og að þetta fólk gæti hittst framm í seturstofu og fengið kaffi og spjallað og það væru bækur til staðar og annað td spilað bingó og félagsvist..þá væri kannski einhver möguleiki á því að þetta blessaða fólk okkar myndu vilja fá hjálp til að snúa til vinnu og fá sér leigt og snúa til venjulegs lífs ef að það er þá ennþá hægt á Íslandi

Anna Sigríður Óskarsdóttir (Suðurnesjabær, 2022-12-17)

#84

Útaf mer finnst allir verðskulda að vera í hlýju husnæði

Olafia Ingibjörg (Reykjanesbær , 2022-12-17)

#88

Ég er mikið búin að velta því fyrir mér hvernig hægt væri að koma fólki sem er heimilislaust í hús, inn úr þessum vetrar kulda og offsaveðri sem nú hefur geysað síðustu daga.
Hvernig væri að kirkjan opnaði nú dyr sínar fyrir þessu fólki sem minnst mega sín. Kirkjur og safnaðarheimili sem er hér út um allt á stórreykjavíkur svæðinu ❓️❓️❓️
Við öll eigum þessi húsakynni og ég fyrir mitt leiti myndi vilja að þau væru nýtt til þess.
Ég er nokkuð viss um að hægt væri að manna 3-4 jafnvel fleiri eftir þörfinni, safnaðarheimili með sjálboðaliðum, fólki á atvinnuleysis bótum og fólki í samfélagsþjónustu.

Aðalbjörg Hrafnsdóttir (Reykjavík , 2022-12-17)

#93

Þetta er ekki í boði !!

Guðrún Bjarnadóttir Bjarnadóttir (Reykjavík, 2022-12-17)

#96

Þau eiga skilið skjól yfir höfuðið

Agnes Jónsdóttir (Reykjavík, 2022-12-17)

#106

Útigangsfólk er líka fólk eins og ég og þú. Það ættu ekki að vera forréttindi einhverra útvaldra að hafa þak yfir höfuðið á Íslandi.

Erlingur Sverrisson (Reykjavík, 2022-12-17)

#115

Óska þess að allir fái samastað og sé ekki vísað á götuna, bókasöfn, bílakjallara og fleiri staði sem fólk þarf að híma hvernig sem aðstæður þeirra eru. Heimilislausir eiga virðingu skilda.

Guðrún Benediktsdóttir (Kópavogur, 2022-12-18)

#116

Allir eiga rétt að búa einhverstaðar

Dagbjört Rúnarsdóttir (Reykjavík, 2022-12-18)

#124

Mannréttindi eru fyrir alla. Ekki bara fyrir millistétt og ofar!

Iris Johannsdottir (Reykjavík , 2022-12-18)

#125

Ég vill að heimilislausir fái húsaskjól,alltaf.

Þorsteinn Bjarnason (Reykjavík, 2022-12-18)

#129

þetta er ómannseskjulegt hvernig er komið fram við þetta fólk og á engn vegin að þurfa vera svona ekkert mál að redda þessu með einu pennastriki

Guðlaug Gestsdóttir (Reykjavík, 2022-12-18)

#131

Það er lífshættulegt fyrir utangarðsfólk að komast ekki í öruggt húsaskjól.

Brynja Grétarsdóttir (Reykjavík, 2022-12-18)

#133

Við erum rík þjóð en ekki fátæk og getum leikandi veitt heimilislausum landsmönnum sem og öllum öðrum landsmönnum virðingu og mannréttindi, ef við erum ákveðin að við viljum það.

Hlynur Vilhjalmsson (Reykjavik, 2022-12-18)

#137

það á engum að vera kalt eða heimilislausir á Íslandi

Þorbjörg þorbjörnsdóttir (Reykjavík, 2022-12-18)

#140

Neið

Júlíana Jónsdóttir (Garður , 2022-12-18)

#141

Ég skrifa hér undir vegna þess að enginn ætti að búa við heimilisleysi á Íslandi.

Þórunn Jóhannsdóttir (Reykjanesbær, 2022-12-18)

#144

Okkur ber rík skylda að hugsa um utangarðsfólk okkar hér á Íslandi ❤️

Rúna Stefánsdóttir (Reykjavík , 2022-12-18)

#154

Það þarf að sýna öllum virðing, umburðarlyndi og umhyggju!

Linda Árnadóttir (Hafnarfjörður , 2022-12-18)

#167

Ég skrifa undir vegna þess að ég vil beina orku minni í átt uppbyggingar og sameiningar í stað niðurrifs og sundrungar.

Hér er ekki beðið um mikið.
Gerum þetta, saman.

Ari Hrodmarsson (Reykjavík, 2022-12-18)

#168

Utangarðsfólk hefur sömu mannrèttindi og aðrir

Þórarinn Traustason (Akureyri, 2022-12-18)

#169

Það eru klár mannrèttindabrot að veikt fólk hafi ekki húsaskjól og mat.

Heiðrun Asgeirsdottir (Hafnarfjörður, 2022-12-18)

#174

Allir eiga rètt á þaki yfir höfuđiđ.

Halldóra Ólafsdóttir (Bramming , 2022-12-18)

#175

Þetta er ekkert annað enn mannréttindabrot .Veikir einstaklingar sem þurfa hjálp .Ríkisstjórnin getur hennt miljörðum i að hjálpa öðru fólki en svo liggur okkar fólk bara á götunni þetta er skömm

Brynja Helgadóttir (Grimsnes, 2022-12-18)

#181

Ég vil ekki vita af samborgurum mínum hýrast á gōtunni og í bílageymslum

Ásta María Þórarinsdóttir (Hafnarfjōrður, 2022-12-18)

#184

Það er sameiginleg skylda okkar sem samfélag að huga að öllum sem því tilheyrir.

Soley Rut Johannsdottir (Mosfellsbær, 2022-12-18)

#185

Eg var einu sinni á götunni og þurfti að sofa á stigagöngum, og mæla göturnar á daginn...

Ingibjörg Eva Löve (Akureyri, 2022-12-18)

#186

Það þarf ekki einu sinni að ræða það !

Jónína Jóhannsdóttir (Reykjavík, 2022-12-18)

#197

Það verður að bæta hag þeirra sem eru með sjúkdóminn alkóholisma og veita þeim þá þjónustu sem þeir þurfa og eiga að hafa rétt á.
Það velur enginn sér þetta hlutskipti.
Sýnum umburðarlyndi og kærleik❤️

Johanna Jonsdottir (Kópavogur, 2022-12-18)



Greidd auglýsing

Við munum kynna þennan undirskriftalista fyrir 3000 aðilum.

Lærðu meira...