Styðja skal við starfsemi listdansskóla til samræmis við annað listnám!

Athugasemdir

#1004

Listin er lífsnauðsyn til að samfélag okkar endurspegli raunveruleg gildi og dansinn hefur alla tíð átt undir högg að sækja hjá stjórnvöldum, af óskiljanlegum ástæðum.

Kolbrún Halldórsdóttir (Reykjavík, 2023-03-26)

#1006

Það verður að sinna grunnkennslu í listdansi á þann hátt að nemendur hafi mőguleika á því að verða dansarar. Þetta kostar mikla vinnu , vel menntaða kennara , góða aðstöðu til þjálfunar og fjármagn til starfsins.

Nanna Ólafsdóttir (Reykjavík , 2023-03-26)

#1010

Mikilvægi dans og kennslu í listum.

Jon Sigurðsson (Kópavogi , 2023-03-26)

#1012

Jafnræði listgreina

Kjartan Ólafsson (Reykjavík, 2023-03-26)

#1014

málefnið er mikilvægt

Tinna Ágústsdóttir (Reykjavík, 2023-03-26)

#1015

Listnám (og þá allar listgreinar) á að vera sjálfsagður hluti af lífi barna og ungmenna.

Helga Rós Hannam (Reykjavík, 2023-03-26)

#1021

Listnám á jafnan rétt og aðrar íþróttagreinar

Áslaug Björnsd (Rvk, 2023-03-27)

#1022

Ég dansaði ballett til þrítugs og báðar stelpurnar mínar eru ballerínur. Þetta var mitt sport og listgrein.

Björg Þorsteinsdóttir (Rochester , 2023-03-27)

#1026

Ég styð dans, dansinn er líf mitt

Harpa Óskarsdóttir (Kopavogur, 2023-03-27)

#1030

Ég styð jöfn tækifæri fyrir börnin okkar, óháð hæfileikum þeirra og vali á listnámi!

Hekla Hannibalsdóttir (Kópavogur, 2023-03-27)

#1031

Tryggja börnum tækifæri til þess stunda áhugamál sín

Ragna Fróðadóttir (Rvk, 2023-03-27)

#1035

Þetta er mikilvæg starfsemi og þjóðargersemi sem væri skammarlegt að sjá eftir

Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir (Reykjavík, 2023-03-27)

#1037

Einhver setti þetta á story. Veit ekkert hvað þetta er

Óðinn Helguson (Hafnarfjörður, 2023-03-27)

#1041

Barnið mitt stundaði nám við Listdansskólann

Hörður Sverrisson (Hafnarfjörður, 2023-03-27)

#1045

Að ballett er mikilvægur fyrir marga og líka fyrir mig 🙂

Arnkatla Ingvadóttir (Reykjavík, 2023-03-27)

#1047

Skólinn er frábær og barnabarnið stundar þar nám.

Steinvör Edda Einarsdóttir (Reykjavík , 2023-03-27)

#1053

Að allir eiga rétt á að stunda sína tómstund á jafningjagrundvelli

Ívar Örn Þórhallsson (Akureyri, 2023-03-27)

#1056

Ég skrifa undir þetta þar sem Listdansskolinn var minn grunnur á mínum starfsferil. Án þessa skola hefði ég aldrei náð eins langt og ég gerðu. Atvinnudansari í 23 ár erlendis. Dans er meira en atvinnu listgrein, dans er agi, líkamleg tenging, tenging fólks og heilsa.

Bryndis Brynjolfsdottir (Rotterdam, 2023-03-27)

#1061

Það þarf að vera til fjölbreyttar tómstundir fyrir fjölbreyttan hóp barna og dans er mjög þroskandi fyrir börnin líkt og flestar íþróttir

Auður Guðmundsdóttir (Seltjarnarnes, 2023-03-27)

#1069

Nemendur í dansi eiga að hafa jafn mikinn stuðning og nemendur í öðrum greinum eins og tónlist og íþróttum
Mikilvægt starf sem þarf að halda áfram annars hverfur mikil þekking og starf!

Margrét Guttormsdóttir (Reykjavík, 2023-03-27)

#1070

þarft málefni

Hjortur Gretarsson (Reykjavik, 2023-03-27)

#1072

Ég skrifa undir vegna þess að ég kem sjálf úr listnáms geiranum. Nú er barnabarnið mitt í ballet og stendur sig vel. Ég trúi því að krakkarnir komi skipulagðari og agaðri úr listnáms geiranum.

Edda Ingvadóttit (Reykjavík, 2023-03-27)

#1075

Börn eiga að fá að dansa !!!!

Julia Hannam (Reykjavík, 2023-03-27)

#1079

Mjög margir njóta þess að dansa og ballett fylgir mikil menning t.d. tónlist, fágun og fegurð.

Sigrún Bjarnadóttir (Reykjavík, 2023-03-27)

#1081

Jöfn tækifæri fyrir börnin okkar, óháð hæfileikum þeirra og vali á listnámi

Rut Hermannsdottir (OSLO, 2023-03-27)

#1089

Áfram listdans á Íslandi!

Karitas Möller (Hafnarfjörður, 2023-03-27)

#1092

Mér þykir mjög mikilvægt að skólinn verði starfræktur áfram.

Jóna Petra Guðmundsdóttir (Mosfellsbær, 2023-03-27)

#1093

Ég elska dans

Álfrún Vala Eyglóardóttir (Reykjavík , 2023-03-27)

#1094

Þetta ástæand sem mennta og menningarmálaráðuneitið og þar af leiðandi íslenksa ríkið er búið að koma íslenksalistdansnum í er út í hött og fyrir neðan allar hellur

Monika Rögnvaldsdóttir (Akureyri, 2023-03-27)

#1095

Ég þekki börn sem elska dans og vilja læra dans.

Íris Gunnarsdóttir (Akureyri, 2023-03-27)

#1114

Styð listdansskóla fyrir börn og ungmenni, allir eiga að hafa val á listnámi.

Brynja Margeirsdóttir (Reykjavík, 2023-03-27)

#1117

Listdansskólar þurfa stuðning

Ingibjorg Vigfusdottir (Reykjavík, 2023-03-28)

#1118

ég skora á mennta- og barnamálaráðherra að leggja ekki niður starfsemi Listdansskóla Íslands.

Katrín Eyjólfsdóttir (Reykjavík, 2023-03-28)

#1124

Bráð nauðsynlegur partur af kennslu margbreytilegri flóru

Martha Ernstsdóttir (Reykjavík , 2023-03-28)

#1128

Samfélag sem styður ekki við listir og listnám er deyjandi samfélag.

Kristín Elfa Guðnadóttir (Reykjavík, 2023-03-28)

#1141

Listdansskólinn sem og allt listdansnám er gríðarlega mikilvægur fyrir það unga fólk sem stundar námið. Ég var nemandi í JSB frá 6-15 ára og Listdansskólanum 16-20 ára og útskrifaðist þaðan árið 2002. Gríðarlega mikilvægt starf sem mótaði mig mikið sem manneskju og hjálpaði mér í gegnum erfiðar aðstæður heima fyrir. Kenndi mér aga, seiglu, hjálpaði með listræna tjáningu og útrás, ásamt þess að njóta þess að tengjast fjölmörgum kennurum á heimsmælikvarða.

Guðrún Inga Torfadóttir (Garðabær, 2023-03-28)

#1145

16 ára gömul stóðst ég inntökupróf í Listdansskóla Íslands sem þá hafði fyrirhuguð áform um að opna útibú á Akureyri. Ekkert varð af því og þar með lauk mínu námi í listdansi. Engin leið að vita hvað hefði orðið hefði ég getað haldið áfram. Mér finnst óhæft með öllu ef þessi skóli verður svo framvegis ekki heldur í boði fyrir börn sem hafa hingað til búið nær og munu nú þurfa að flytja erlendis til að efla sína hæfileika. Jöfn tækifæri, takk.

Björk Óskarsdóttir (Kaíró, 2023-03-28)

#1152

Listnám er nauðsynlegt fyrir samfélagið og gefur þeim sem það stunda, hvort sem er í formi dans, myndlistar, tónlistar eða annars listforms, mikilvægar leiðir til að tjá sig og stunda listir. Öll eiga að hafa tækifæri til að stunda það listnám sem kallar á þau.

Anna Sigurðardóttir (Hafnarfirði, 2023-03-28)

#1153

Ég stundaði nám í listdansi sem barn og unglingur og það hafði gífurlega mótandi áhrif á mig sem manneskju. Ég er leikkona í dag vegna þess að ég var í listdansi.

Hilmarsdóttir Eygló Hilmarsdóttir (Reykjavík, 2023-03-28)

#1160

Ég á systur í listdansnámi

Elísa Sigurjónsdóttir (Hafnarfjörður, 2023-03-28)

#1171

Listdans hafi jafnt vægi og aðrar listgreinar

Þorbjörn Sigurðsson (Reykjavík, 2023-03-28)

#1174

Dans skiptir máli - mikilvægt er að halda uppi öflugu dansnámi, fyrir allan aldur, öll kyn og öll stig. Dans sem listgrein er atvinnuskapandi og uppbyggjandi. Dans sem íþrótta- og hreyfiiðkun kemur til móts við stóran hóp sem finnur sig ekki í hefðbundnum íþróttahúsum. Dans sem tómstundanam og afþreying bætir jafnt andlega og líkamlega líðan. Og ekki gleyma… dans bætir minnið og vinnur gegn ýmsum öldrunarsjúkdómum.

Vigdís Arna Jóns. Þuríðardóttir (Reykjavík, 2023-03-28)

#1192

Jöfn tækifæri

Ásdís Gunnarsdóttir (Reykjavík, 2023-03-28)

#1195

Dans, tónlist, leiklist og sú tjáning sem það inniber er hverri sál lífsnauðsyn. Það gefur lífinu lit og gleði

Brynja Runólfsdóttir (Reykjavík, 2023-03-28)

#1197

Ég á börn í listdansi og er mjög ósátt við þetta óréttlæti. Það eiga allar listgreinar að fylgja sömu reglum og hafa sömu tækifæri og réttindi.

Íris Dröfn Halldórsdóttir (Reykjanesbær , 2023-03-28)