Klárum dæmið

Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans

Þessi umræðuþráður hefur verið sjálkrafa búinn til vegna undirskriftarsöfnunar Klárum dæmið.


Gestur

#76

2013-04-22 21:44

Hættum nú þessu giski og ef tali. Klárum samninginn og sjáum hvað verður!

Gestur

#77

2013-04-22 21:54

Síðan við "gengum" í EES höfum við dinglað öðrum fætinum innan við þröskuld ESB. Á þeim tíma hefur norskur almenningur í tvígang fengið að kjósa um aðild að ESB en ég aldrei. Nú má ég :)

Gestur

#78

2013-04-22 21:59

Slæmt fyrir mál staðinn að þetta skuli vera á ensku :-(

Gestur

#79

2013-04-22 22:09

hálfnað er verk þá hafið er blátt

Gestur

#80 Re:

2013-04-22 22:19

#78: -

mál staðinn?

eða málstaðinn?


Gestur

#81

2013-04-22 22:34

Kvitt.
The old times are coming to an end, and "Europe" will be no more.

#82 Looking forward

2013-04-22 22:35

Judging from "guest's" punctuation, he hardly read a book in his life, and judging from his English, "guest" seems to be an Icelander. It does not surprise me that "guest" seems to think he makes his case stronger and more intelligent sounding by attempting to make it in English. This is typical of people who suffer from inferiority complex, a decise most victims of brainwashing have in common. Inferiority complex coupled with a strange Stockholm syndrome inherited from ancient times (all of Europe's royalty descends from Germany originally) is the usual cause of both slave mentality and that whore-like element an individual needs to be able to betray his consciousness and humanity falling for implausible slogans relating to currency and economy. Falling for the highest bidder is indeed the most common reason for both treason and treason against mankind, both of which Iceland would be committing by joining the EU. Doing so in times such as today, when the EU is falling at an accelerating rate, would also be showing the rest of the world the incredible stupidity of Iceland, and making evil people jump to the conclusion that such a nation is only fit for slavery. Don't become subjects of Germany. Have some pride!

Gestur

#83

2013-04-22 22:42

Það er klárt mál, að þjóðin á að kjósa um slíkt stórmál.

Gestur

#84

2013-04-22 23:11

Það er útilokað að vita niðurstöðu samningaviðræðnanna fyrirfram. Það er óskynsamlegt að gefa sér hana og óhugsandi að íslenska þjóðin mundi samþykkja vondan samning í þjóðaratkvæðagreiðslu. Klárum samningaviðræðurnar og leyfum þjóðinni að taka upplýsta ákvörðun.

Gestur

#85

2013-04-22 23:27

Mikið óskaplega leiðist mér öfgafólkið í Heimssýn og þeirra vinir. Þetta úrtölufólk getur ekki einu sinni unnt fólki, sem vill fá að kjósa um aðildarsamninginn, að tjá hug sinn. Það þykist vita allt betur og leyfir sér í skjóli nafnleyndar að atyrða fólk og gera lítið úr því. Gott verður þegar þetta allt verður yfirstaðið og við komin í Evrópusambandið, þá munu þessar leiðindaraddir þagna ein af annarri alveg eins og gerðist við tilkomu EES og EFTA.

Gestur

#86

2013-04-22 23:27

Sjáum samningana og tökum svo ákvörðun!

Þið sem minnst hafið lesið, vinsamlegast ekki tjá ykkur um notkun á bókasöfum. Áróður er ekki sama og upplýsingaöflun. Verum ekki reið, lesum okkur bara til og tökum upplýsta ákvörðun.


Gestur

#87

2013-04-23 00:01

Klára þetta mál. Það er skammarlegt að hætta við aðildarviðræður. Þjóðin kýs svo hvort hún vill í sambandið eða ekki.

Gestur

#88

2013-04-23 00:24

Þetta verður að gerast!
End "Europe" = End Illusion and Superstition = End Injustice, Inequality and Inslavement of Mankind

#89 Citizen of the World

2013-04-23 00:29

Leiðindaraddir þagna þegar við komumst í ESB, segir þú? Það sem gerist EF að við komumst í ESB er að rödd litla Íslands mun bráðum þagna fyrir fullt og allt. Hún á sér líf í framtíðinni ef hún hefur vit á því að standa utan við ESB. Það eru að koma skuldaskil í þessum heimi og Bretar, Þjóðverjar og aðrir sem hafa gert mannkyninu mest illt verða látnir borga allt sem þeir hafa tekið til baka. Þeir sem heimurinn mun þá líta á sem þegna þeirra og hjú fá sömu málagjöld. Þeir sem höfðu vit á að skilgreina sig upp á nýtt, í nýjum heimi, í takt við nýja tíma, þeir eiga enn framtíð. Evrópa leikur aukahlutverk héðan í frá. Það er það eina sem hún á skilið. Bræður okkar sem hafa verið í hlekkjum rísa upp, í austri, suðri og vestri og það verður engin miskunn fyrir "Evrópumanninn" fyrr en hann hefur bætt fyrir allar sínar syndir. Heimur byggður á þrælahaldi og arðráni er að taka enda.
Vertu maður. Rístu upp.

#90 Citizen of the World

2013-04-23 00:32

Svo veldu nú, hvort ertu maður eða einungis slíkur í hálfum skilningi þess orð, það er að segja hálfgildingsmenni, öðru nafni Evrópumaður; óvinur einingar mannkynsins. Veldu vel. Veldu ESB og þú hefur tekið þér stöðu með hinum gamla heimi kúgunnar og arðráns, fals og táls. Veldu upplýsinguna. Veldu nýja heiminn. Hafnaðu ESB og yfirráður Þýskalands.

Gestur

#91

2013-04-23 00:44

Já, klárum dæmið

Gestur

#92

2013-04-23 00:44

Ég er ein af þeim sem hef "rýnt" í Evrópulöggjöfina í þessu aðildarferli. Það er ótal margt sem við getum lært af henni og ættum að taka upp hvernig sem fer. Þetta er afrakstur af samvinnu ólíkra þjóðarbrota og mörg hundruð milljóna manna samfélags, greinilega unnið af mikilli fagmennsku og til eftirbreytni. Getur það verið svo slæmt? Samfélag sem við eigum í nánum og miklum samskiptum við og það mun ekki breytast í framtíðinni. Allar þessar þjóðir eru sérstakar á sinn hátt. Við erum t.d. með mjög litla stjórnsýslu og þurfum að semja um að tekið sé tillit til þess svo álagið verði ekki of mikið. Og trúið mér, það er hægt að semja um mörg þess háttar atriði.
The All Seeing Eye Is Watching You

#93 Global Perspective

2013-04-23 03:21

"Evrópa" er ekki samfélag. Þar til draumur um "samfélag Evrópumanna" deyr verður aldrei friður á jörðu og eining meðal mannkynsins. Því það sem knúði áfram þennan draum og bjó hann til var kynþáttahatur. Evrópa undir stjórn Þýskalands er bölvuð og dauðadæmd. Breytt og annars konar samfélag manna sem byggja þessa álfu, í mun nánari tengslum við aðrar álfur, skilgreint á allt annan hátt, er eina undankomuleiðin, því framtíðin er öðruvísi en en þeir sem lesa bara það sem að þeim er rétt halda að hún sé. Til að réttlætið nái fram að ganga og mannkynið eiga neina framtíðarvon þarf algjöra uppstokkun núverandi kerfis. Og fyrsta skrefið og það eina sem verður örugglega stigið og stigið mjög fljótt er algjört afnám forréttinda Evrópu. Til að byrja með verður þetta mjög sársaukafullt skref og allir fegnir sem sleppa við að teljast eiginlegir þegnar ESB þegar þar að kemur. Og tíminn er naumur þangað til. Verum ekki það vitlaus að binda okkur við sökkvandi skip stundina rétt áður en það sekkur.
Stundin nálgast...Varaðu þig.

#94 Stundin nálgast

2013-04-23 03:26

Fasistar allt frá Hitler til Mosley notuðu slagorðið "Evrópa er ein þjóð" og dreymdi um "Sameinaða Evrópu". Þetta var drifkraftur þeirra og draumur. Þetta olli morðun og arðráni. Þetta er draumurinn sem þarf að deyja. Hafnið hryllingnum og látið ykkur dreyma drauma um mannkynið í staðinn. http://eurotruth.tripod.com/11.htm

Gestur

#95

2013-04-23 04:08

Mjög líklegt er að Evrópusambandið vilji gjarnan hafa Ísland sem aðildaríki vegna menningarlegra, stjórnmálalegra, sögulegra sem og viðskiptalegra tengsla. Þar sem þjóðin er fámenn er ástæða að taka tillit til sérstakra aðstæðna m.a. vegna sérhæfðra atvinnuhátta, fiskveiða og landbúnaðar sem hvoru tveggja eru sjálfbær í eylandi fjarri öðrum.

Gestur

#96 Re: sammála!

2013-04-23 04:12


Gestur

#97

2013-04-23 07:19

Það er þjóðin sem á að hafa síðasta orðið í þessu máli.
Íslendingur

#98 og svo er það blessuð krónan

2013-04-23 07:38

Af hverju vill fólk hafa laun, sparifé og lán í krónum þegar útflutningur er í stöðugri gjaldmiðlum eins og td. evrum. Eiga bara útgerðir og álfyrirtæki að njóta þess sem greiða svo starfsmönnum sínum laun í og endalaust gjaldfallandi krónu?

Gestur

#99

2013-04-23 07:40

Skiptir máli fyrir alla.

Gestur

#100

2013-04-23 08:17

Klára dæmið er eina leiðin til upplýsinga.